Morgunútvarpið

Fjárhættuspilahegðun ungmenna á Íslandi og ófriðurinn í Mið Asturlöndum

Ísrael og Bandaríkin réðust á skotmörk í Íran um helgina. Ali Khameini, æðstiklerkur Íran var drepinn í árásunum ásamt öðrum háttsettum leiðtogum. Íran réðist í kjölfarið á bandarískar herstöðvar í Mið-Austurlöndum og heitir því hefna árásanna grimmilega. Kjartan Orri Þórsson, sérfræðingur í málefnum Íran, kom til okkar í Morgunútvarpið og fór yfir stöðuna.

Hvað er frétta úr heimi tækninnar? Það er enginn betur til þess fallinn greina okkur frá því en hinn stimamjúki Guðmundur Jóhannsson, sem mætti stútfullur af visku um magnaðar tækniframfarir.

Loftvarnakerfið í Barein keppist við skjóta niður eldflaugar Írana sem þeir skjóta landinu eftir Bandaríkin og Ísrael gerðu árásir á Íran. Guðlaug Ólöf Sigfúsdóttir hefur búið í Barein í 14 ár og upplifir nýjan veruleika á þessum ófriðartímum. Hún var á línunni frá Barein.

Fjárhættuspil eru sækja í veðrið hjá ungu fólki á Íslandi enda beinist markaðssetning slíkra fyrirtækja sífellt meira þeim. Ragný Þóra Guðjohnsen og Unnar Geirdal Arason hafa rannsakað fjárhættuspilahegðun ungmenna á Íslandi og við fórum yfir niðurstöðurnar með Ragný, sem er dósent og faglegur stjórnandi íslensku æskulýðsrannsóknarinnar. Páll Heiðar Jónsson, sálfræðingur hjá SÁÁ, þekkir vel til og hann tók umræðuna með okkur.

Einar Örn Jónsson frá íþróttadeildinni kom til okkar í Morgunútvarpið og fjallaði um hvernig það sem er gerast í alþjóðastjórnmálum hefur áhrif á íþróttaviðburði.

Birt

2. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,