Morgunútvarpið

Smekkleysið sigrar,alsber Sidney Sweeney,lestrarkeppni og atvinnuvegaráðherra um laxeldi í Seyðisfirði

Í síðustu viku var greint frá því fyrirtækið Kaldvík hefði fengið rekstrarleyfi fyrir tíu þúsund tonna laxeldi í Seyðisfirði. Áform um eldi á svæðinu hafa mætt talsverðri andstöðu Seyðisfirðinga. Benedikta Guðrún Svavarsdóttir, formaður Vár sem berst gegn laxeldinu, segir formlegt samtal við Seyðfirðinga hafi ekki átt sér stað þrátt fyrir andstöðu þeirra við komu laxeldis. Kaldvík segist hafa átt í góðum samskiptum við sveitarfélagið. Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra er á leiðinni austur í vikunni og var á línunni.

Svakalega lestrarkeppnin fer af stað í dag en 100 skólar um allt land eru skráðir og keppa um það hver les mest næstu þrjár vikur. Verðugt verkefni þegar lesskilningur barna virðist vera á undanhaldi - eða hvað? Rithöfundarnir Eva Rún Þorgeirsdóttir og Blær Guðmundsdóttir komu til okkar en þær hlutu á dögunum Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur í ár fyrir bókina Bestu vinir.

Bragi Valdimar Skúlason birti á dögunum mynd af gervigreindarteiknuðum límmiða sem börn frá gefins frá lögreglunni á Facebook og hafði ýmislegt við hann athuga. Þetta á sér stað um svipað leyti og gervigreind tekur yfir ýmis skapandi störf og Bragi telur smekkleysið hafa sigrað og metnaðarleysið komið til vera. Hann á þó erfitt með trúa því við sættum okkur við það. Bragi Valdimar kom til okkar í spjall.

Íþróttakonur víða um heim gagnrýna nýja auglýsingaherferð þar sem leikkonan Sydney Sweeney situr fáklædd fyrir og setur sig í stellingar ýmissa íþróttagreina. Veðmálafyrirtæki stendur á bak við auglýsinguna sem er gagnrýnd fyrir kynlífsvæða íþróttir kvenna. Heilsusálfræðingurinn og samfélagsmiðlastjarnan Ragnhildur Þórðardóttir, Ragga Nagli, ræddi við okkur um þetta.

Birt

15. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,