Viðskiptaráð birti nú í morgun úttekt þar sem rýnt er í uppsagnarvernd opinberra starfsmanna og svartir sauðir eru sagðir kosta ríkið um 30 til 50 milljarða árlega. Við ræðum við Gunnar Úlfarsson, hagfræðing Viðskiptaráðs.
Á hvaða hátt fela nýjar tæknilausnir í sér bæði öryggisógnir og tækifæri til friðar, samvinnu og vopnaeftirlits? Hvernig byggjum við upp traust á tímum vaxandi spennu og óvissu í varnar-, öryggis og afvopnunarmálum? Þetta eru stórar spurningar sem Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur velta upp ásamt einvala liði sérfræðinga á morgun. Við fáum þau í spjall um málið.
Hæstiréttur hefur úrskurðað að búvörulögin sem samþykkt voru á síðasta kjörtímabili skuli standa. Þar með var niðurstöðu Héraðsdóms snúið við og samkeppnislög um kjötafurðastöðvar þar með undanskildar samkeppnislögum. Páll Gunnar Pálsson forstjóri Samkeppniseftirlitsins kemur til okkar.
Viktor Orri Valgarðsson, stjórnmálafræðingur, ræðir við okkur um nýja samninga Breta við Evrópusambandið og stöðu Íslands gagnvart sambandinu í ljósi þjóðaratkvæðagreiðslu.
Margrét Valdimarsdóttir, dósent í afbrotafræði við Háskóla Íslands, ræðir við okkur um ákvörðun franskra stjórnvalda um að byggja nýtt fangelsi í Amazon-frumskóginum í Frönsku Gíneu, þá hugmynd um að senda fanga erlendis og breytta nálgun í fangelsismálum almennt.
Lækkun stýrivaxta í gær samhliða vísbendingum Seðlabankastjóra um að lækkunin geti verið sú síðasta í bili fær fólk til að leiða hugann að endurfjármögnun lána sinna. Jón Jósep Snæbjörnsson þjónustu- og upplifunarstjóra Aurbjargar kemur til okkar í lok þáttar.