Gamall strætisvagn, einskonar verslun á hjólum, ferðast nú um bæi sem taka á móti skemmtiferðarskipum og selur ferðamönnum minjagripi. Árný Rós Gísladóttir, sem rekur verslunina Litla netagerðin á Ísafirði, hefur gagnrýnt strætóinn og segir að hann sé hreinlega glataður fyrir þau sem reka heilsársverslanir í bæjunum. Árný Rós var á línunni.
Útvarpsleikritið Baunin á Rás 1 gerist fyrir vestan í kringum aldamót. Sveitaballamenningin er upp á sitt besta og rúnturinn stendur fyrir sínu en Baunin er hjartað, hún er ekki bara besta sjoppan, þar er líka djammað og slúðrað. Birta og Bergur hittast stundum í Bauninni, þau eru spennt hvort fyrir öðru en fyrr en varir breytist allt og þau þurfa að taka erfiðar ákvarðanir. Hljómar spennandi og Kári Viðarsson, einn af höfundum verksins, kom til okkar.
Undirbúningur er í fullum gangi fyrir stórtónleika Kaleo á þingvöllum 20. Júní. Ýmsir hafa lýst yfir áhyggjum af því hvernig svæðið tekur þessum mikla fjölda fólks sem hefur boðað komu sína á tónleikana og Torfi Stefán Jónsson, sagnfræðingur og landvörður, kom til okkar og sagði okkur hvernig svæðið er undirbúið.
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, veltir fyrir sér hvort vinnuskóli þurfi að vera vesen í pistli á Vísi. Þar spyr hún af hverju það þurfi að hafna stórum hópi barna sem eru tilbúin, viljug og hæf til að taka þátt í starfinu vegna þess eins að þau ná ekki 13 ára aldri á tilteknum degi í júlí. „ Gjörið svo vel að laga þetta!“ segir hún. Íris kom til okkar.