Morgunútvarpið

Ég lofa,Skólahreysti,sundlaugamenning íslendinga og Björgvin Franz er Trölli

Skólahreysti fer í af stað í vikunni en það er alltaf jafn gaman fylgjast með þessum mögnuðu krökkum etja kappi í þessari skemmtilegu keppni. Andrés Guðmundsson og Axel Andrésson komu til okkar og sögðu okkur frá þessu.

Of mörg börn eru beitt kynferðisofbeldi og alltof þeirra segja frá ofbeldinu. Ég lofa er vitundarvakning Barnaheilla sem fór af stað í síðustu viku og stendur yfir til 29. apríl. Þar er athygli vakin á umfangi kynferðisofbeldis gegn börnum og fólk hvatt til brjóta niður þagnarmúrinn sem umlykur slík mál. Í dag verður boðið upp á ókeypis fræðslufund sem er öllum opinn til veita foreldrum og fagfólki verkfæri til vernda börnin sín og tala við þau um þessi erfiðu mál. Þær Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnisstýra ofbeldisforvarna- og kynheilbrigðismála hjá Barnaheillum og Tótla I. Sæmundsdóttir framkvæmdastjóri komu til okkar.

Um helgina kom í ljós Björgvin Franz Gíslason fer með hlutverk Trölla í fjölskyldusöngleiknum Þegar Trölli stal jólunum, sem verður frumsýndur á Stóra sviðinu í nóvember næstkomandi. Björgvin Franz fetar því í fótspor leikara á borð við Jim Carrey og Stefán Karl Stefánsson, sem fóru með hlutverk Trölla á skjánum og á sviði. Undirbúningur fyrir sýninguna er fara á fullt og þegar lokað var fyrir skráningar í prufur fyrir krakkaleikhópinn höfðu fleiri en þúsund krakkar skráð sig. Við fengum Björgvin Franz til okkar í spjall um Trölla.

Teiknarinn og rithöfundurinn Rán Flygenring hefur sett upp sýningar í Vesturbæjarlaug, Sundhöll Reykjavíkur og Dalslaug sem byggir á bók hennar Sketching Bathing in Iceland. Sýningarnar standa yfir út maí og verður hún jafnframt vera með tvær baðteiknismiðjur fyrir sundáhugafólk á öllum aldri í Dalslaug og Gerðubergi á Barnamenningarhátíð. Tilefnið er íslensk sundlaugamenning hefur verið skráð á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf og Rán kom til okkar og tók sundlaugarmenninguna allar 360 gráðurnar.

Birt

27. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,