Morgunútvarpið

Fangelsismál á Íslandi,66,línur að skýrast í borginni og hvar er Jón?

Vetrarólympíuleikarnir á Ítalíu eru ekki bara íþrótaviðburður heldur líka hálfgerð tískusýning. Vörumerki á borð við Prada, Armani, Nike eru á meðal þeirra sem klæða íþróttafólkið ytra og klæðnaður íslenska liðsins vakti mikla athygli á setningarathöfninni. 66° norður klæddi Íslendingana og gallinn hefur verið áberandi í umfjöllun fjölmiðla um tískuna á vetrarólympíuleikunum. Fannar Páll Aðalsteinsson frá 66 var á línunni.

Afstaða, réttindafélag fanga, kallar eftir því manni, sem var á Bakkakoti sem barn og situr í fangelsi á Spáni, verði gert kleift ljúka afplánun á Íslandi og fái þá sálfræðiþjónustu og meðferð sem ríkisstjórnin hefur lofað Bakkakotsdrengjum. Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, segir mikilvægt enginn skilinn eftir í þessu máli en bendir á tilraunir til manninn heim hafi engu skilað. Guðmundur Ingi kom til okkar í Morgunútvarpið.

Oddvitamálin í borginni eru byrjuð skýrast fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Í vikunni kom í ljós Ari Edwald leiði lista Miðflokksins en áður varð ljóst Björg Magnúsdóttir leiði Viðreisn, Hildur Björnsdóttir Sjálfstæðisflokkinn, Pétur Marteinsson Samfylkinguna og Sanna Magdalena Mörtudóttir sameiginlegan lista Vors til vinstri og Vinstri grænna. Við fengum Eirík Bergmann stjórnmálafræðing til meta með okkur stöðuna.

Sjö árum eftir Jón Þröstur Jónsson hvarf í Dyflinni, óskar lögreglan enn eftir upplýsingum sem geta komið gagni. Í frétt RÚV í vikunni var haft eftir Eiríki Valberg rannsóknarlögreglumanni írska lögreglan hafi tekið málið föstum tökum. Anna Marsibil Clausen hefur rannsakað málið í samstarfi við írska ríkisútvarpið RTÉ og afrakstur þeirrar vinnu var þáttaröðin Hvar er Jón? sem kom út í fyrra. Við fengum Önnu til okkar og spurðum hvað hafi gerst í málinu frá því þættirnir fóru í loftið.

Birt

10. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,