Morgunútvarpið

17. sept -Ómannvæn tækni, olíuleit, Sönnu-lausir Sósíalistar o.fl..

Á meðan við festum okkur í hatrömmum átökum hægri-vinstri stjórnmála, safnar stétt valdhafa hljóðlega sér fordæmalausum völdum. Þetta skrifar Halldóra Mogensen stofnmeðlimur Samtaka um mannvæna tækni. Við fáum hana í fyrsta bolla.

Þingmenn ræddu í gærkvöldi um þingsályktunartillögu þingmanna Miðflokksins um leit olíu og gasi. Við ræðum tillöguna og mál sem henni tengjast við Bergþór Ólason, þingflokksformann Miðflokksins, og Dag B. Eggertsson, þingmann Samfylkingarinnar.

Hlutabréfaverð Íslandsbanka hefur ekki verið hærra frá útboði ríkisins í maí. Við ræðum við Snorra Jakobsson, hagfræðing hjá Jakobsson Capital, um Íslandsbanka og stöðuna á hlutabréfamarkaði í upphafi hausts.

Hópur þeirra þjóða sem hyggjast sniðganga Eurovision fái Ísraelar taka þátt hefur stækkað síðustu daga. Við ræðum málið við Höllu Ingvarsdóttur hjá FÁSES.

Framkvæmdastjórn Sósíalistaflokksins Íslands skoraði í gær á Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, oddvita flokksins í Reykjavík, segja sig úr flokknum eftir viðtal við RÚV. Við ræðum stöðu oddvitans og flokksins við Sæþór Benjamín Randalsson, formann framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins, í lok þáttar.

Frumflutt

17. sept. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Ingvar Þór Björnsson.

Þættir

,