Morgunútvarpið

26. -Daddy, daddy, samningatækni, Pride í Búdapest o.fl..

Leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem haldinn var í Hollandi lauk í gær og hefur verið sagður sögulegur. Björn Malmquist fréttamaður okkar í Brussel gerir fundinn upp með okkur.

Pride hátíðin og gangan er framundan í Búdapest þrátt fyrir ungversk lögregla hafi lýst því yfir gangan væri ólögleg. Borgarstjóri Búdapest hefur lýst yfir stuðningi við gönguna og hyggst taka þátt. Snærós Sindradóttir fjölmiðlakona er búsett í Búdapest og við heyrum í henni.

Árni Friðleifsson, aðalvarðstjóri hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, ræðir við okkur um umferðaröryggi í ljósi slysa undanfarið og sumarsins framundan.

Aldís Guðný Sigurðardóttir, lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og sérfræðingur í samningatækni, ræðir við okkur um leiðtogafund NATO og sérstaklega samskipti Donalds Trump Bandaríkjaforseta og Mark Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins.

styttist heldur betur í Evrópumót kvenna í knattspyrnu hefjist í Sviss. Helga Margrét Höskuldsdóttir stýrir Stofunni og verður gestur okkar eftir fréttayfirlitið hálf níu.

Jónas Guðmundsson gönguleiðsögumaður, landvörður og ferðamálafræðingur segir okkur frá gönguleiðum á höfuðborgarsvæðinu.

Frumflutt

26. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Ingvar Þór Björnsson.

Þættir

,