Morgunútvarpið

24. júní -Fræ í geimnum, garðyrkja, sumarleikhús, varnarmál o.fl..

Sævar Helgi Bragason, vísindasérfræðingur Morgunútvarpsins, ræðir við okkur um fréttir úr heimi vísindanna.

Bandaríski rafbílaframleiðandinn Tesla hóf um helgina prófanir á sjálfakandi leigubílum sem fyrirtækið hefur þróað. Björn Kristjánsson, bílasérfræðingur og ráðgjafi hjá FÍB, hefur setið í einum slíkum og ræðir þessa þróun við okkur.

Allt í einu erum við langt komin inn í júnímánuð og eflaust einhver sem velt því fyrir sér hvort orðið of seint setja niður matjurtir hvers kyns. Svo er víst ekki. Guðríður Helgadóttir, garðyrkjufræðingur fer yfir sín bestu matjurtarræktunarráð með okkur.

Sumarleikhúsið Afturámóti byrjar í vikunni í Háskólabíó. Þrjú íslensk verk verða sett á fjalirnar. Bjarni Snæbjörnsson og Katla Þórudóttir Njálsdóttir taka þátt í hvort sínu verkinu. Við fáum þau í heimsókn.

Við ræðum alþjóðamálin og stöðu Íslands í því samhengi við Víði Reynisson, þingmann Samfylkingarinnar, og Bergþór Ólason, þingflokksformann Miðflokksins.

Frumflutt

24. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Ingvar Þór Björnsson.

Þættir

,