Morgunútvarpið

20. júní -Utanríkisráðherra, skemmtiferðaskip, fréttir vikunnar o.fl..

Rúm vika er síðan Ísrael gerðu árás á Íran sem hefur svo í kjölfarið verið svarað á víxl. Donald Trump Bandaríkjaforseti ætlar taka ákvörðun um hvort Bandaríkin taki beinan þátt í árásum Ísraela á næstu tveimur vikum. Við ræðum stöðuna við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra.

Jón Páll Hreinsson, bæjarstjóri í Bolungavík, verður gestur okkar eftir fréttayfirlitið hálf átta þegar við ræðum ferðaþjónustu á Vestfjörðum.

Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, ræðir við okkur um ákvörðun veitingastaða um rukka sérstaklega fyrir sætin á stórhátíðardögum til koma til móts við launakostnað.

Birna Þórisdóttir, næringarfræðingur, verður gestur okkar eftir átta fréttir en hún skrifaði grein í gær þar sem hún sagði upplýsingar um mataræði barna og unglinga á landsvísu séu of gamlar og það óásættanlegt. Við ræðum þau mál við hana.

Við förum síðan yfir fréttir vikunnar með Kjartani Orra Þórssyni, kennara og sérfræðingi í málefnum Írans, og Bryndísi Ísfold Hlöðversdóttur stjórnmálafræðingi og kennara.

Frumflutt

20. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Ingvar Þór Björnsson.

Þættir

,