Við byrjum daginn á því að fá Biskup, Guðrúnu Karls Helgudóttur til okkar. Handbókardrög sem hún kynnti á prestastefnu á dögunum. Vakti heldur betur viðbrögð. Hún hefur meðal annars verið sökuð um að boða villutrú. Biskup svarar því yfir fyrsta bolla.
Kristján Þórður Snæbjarnarson, þingmaður Samfylkingarinnar, og Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, verða gestir okkar eftir fréttayfirlit hálf átta þegar við ræðum raforkumarkaðinn. Ráðherra málaflokksins kynnti skýrslu um þau mál í upphafi viku og þá verður raforkuöryggi rætt á þingi í dag.
Greint var frá því í gær að maður hefði verið kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann í miðborg Reykjavíkur aðfaranótt þjóðhátíðardagsins. Hörður Lárusson, sérfræðingur um íslenska fánann, ræðir við okkur um hann, hvað má og hvað má ekki og hvernig við notum hann og ættum að nota hann.
Guðmundur Jóhannsson, tæknispekúlant Morgunútvarpsins, ræðir við okkur um fréttir úr heimi tækninnar.
Sléttar tvær vikur eru í að EM kvenna í knattspyrnu hefjist þar sem Ísland mætir Finnlandi í fyrsta leik. Sindri Þór Sigurðsson, varaformaður Tólfunnar stuðningssveitar, heldur utan um ferð sveitarinnar út til Sviss og verður gestur okkar í lok þáttar.