Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar í Fjarðarbyggð og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, verður gestur minn í upphafi þáttar en sambandið er áttatíu ára í dag og því er haldin ráðstefna þar sem ræddar verða ýmsar áskoranir og tækifæri sem snerta sveitarfélögin.
Halldóra Mogensen og Atli Þór Jóhannsson, stjórnendur í Samtökum um mannvæna tækni, ræða við mig um nauðsyn þess að endurskoða hvað framfarir þýði í raun, en Halldóra skrifaði grein í gær um þau mál, gervigreind, borgaralaun og fleira.
Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafi, mætir í sitt hálfsmánaðarlega spjall um fjármál heimilisins.
Í gær var greint frá því að Knattspyrnusamband Norður- og Mið-Ameríku hefði hafnað umsókn knattspyrnusambands Grænlands um aðild og landslið Grænlendinga bíður því enn eftir að leika sinn fyrsta keppnisleik í sögunni. Ég ræði við Stefán Pálsson, sagnfræðing og knattspyrnuspekúlant, um stöðu mála og fótbolta á Grænlandi.
Eldhúsdagsumræður fara fram á þingi í kvöld og ég rýni í stöðuna í stjórnmálunum með Eiríki Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði.
Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, sagði í færslu á Facebook síðu sinni í gær að víða væri nú rætt um mögulegt samstarf við önnur stjórnmálasamtök og að þetta samstarf og samstaða væru lykillinn að árangri og áhrifum á næsta kjörtímabili. Í sömu færslu nefndi hún að ungliðahreyfingar Vinstri grænna og Sósíalistaflokksins ætli í vikunni að halda partý saman. Formenn ungliðahreyfinganna, Karl Héðinn Kristjánsson og Jósúa Gabríel Davíðsson, koma til mín og ræða stöðu vinstrisins og hvort grasrótin og unga fólkið í flokkunum kalli eftir sameiningu.
Mörgum brá í gærkvöldi þegar kennsluflugvél á leið til lendingar á Reykjavíkurflugvelli missti nefhjól sem lenti á Austurvelli. Margrét Manda Jónsdóttir, sem situr í stjórn Hljóðmarkar hefur bent á hættur þess að Reykjavíkurflugvöllur sé svona nálægt þéttri byggð og ég ræði við hana og Njál Trausta Friðbertsson, flugumferðarstjóra sem einnig er formaður Hjartans í Vatnsmýri.