Morgunútvarpið

10. júní - Alþingi, Madleen og lýsi

Hátt í helmingur landsmanna tekur aldrei lýsi samkvæmt nýrri könnun Prósents. Ég ræði við Jóhönnu Eyrúnu Torfadóttur, næringarfræðing og verkefnastjóra hjá Landlæknisembættinu, um niðurstöðurnar, viðhorfsbreytingar og deilur um kosti lýsis í upphafi þáttar.

Sævar Helgi Bragason, vísindasérfræðingur Morgunútvarpsins, fer yfir fréttir úr heimi vísindanna.

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mætir því norður-írska í Belfast í kvöld. Ég ræði leikinn og stemninguna í liðinu við Gunnar Birgisson, íþróttafréttamann og sparkspeking.

Bjarni Már Magnússon, prófessor og deildarforseti lagadeildar Háskólans á Bifröst, og sérfræðingur í hafrétti, verður gestur minn eftir átta fréttir þegar við ræðum för skipsins Madleen sem er komið til hafnar í Ísrael eftir ísraelskir hermenn stöðvuðu för þess í egypskri lögsögu. Tólf aðgerðasinnar voru um borð í skipinu sem var á leið til Gaza með hjálpargögn.

Ég ræði síðan stöðuna á þingi í lok þáttar við Sigríði Á. Andersen, þingmann Miðflokksins, og Sigmar Guðmundsson, þingflokksformann Viðreisnar.

Frumflutt

10. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Ingvar Þór Björnsson.

Þættir

,