Morgunútvarpið

31.01.2025

Sjaldan er góð vísa of oft kveðin. Umhleypingar í veðrinu geta valdið jafnt tjóni á fólki og eignum þess ef ekki er hugað hinum ýmsu brögðum til koma í veg fyrir það. Sigrún A. Þorsteinsdóttir sérfræðingur hjá VÍS ræðir málið við okkur.

Heiða Björg Hilmisdóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, ræðir við okkur um borgarmálin og kennaraverkföll.

Við tökum stöðuna á væringum í norskri pólitík með blaðamanninum Atla Steini Guðmundssyni sem er búsettur í Noregi.

Lára V. Júlíusdóttir, lögmaður og sérfræðingur í vinnumarkaðsrétti, verður gestur okkar eftir átta fréttir þegar við ræðum kjaradeilu kennara og viðsemjenda og kæru foreldra.

Fréttir vikunnar: Katrín Júlíusdóttir, fyrrverandi ráðherra og ráðgjafi, og Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur.

Frumflutt

31. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Ingvar Þór Björnsson.

Þættir

,