Það þarf að berjast gegn bakslaginu í réttindabaráttu kvenna, segja rauðsokkur sem gengu fremstar í kröfugöngu verkalýðsfélaganna í dag. Fimmtíu og fimm ár eru síðan þær fengu fyrst að ganga með.
Ekki er hægt að beita refsiviðurlögum, hafi brot verið framin í njósnaaðgerðunum sem Kveikur fjallaði um í vikunni, að sögn lögmanns. Það útiloki þó ekki að þeir sem njósnað var um sæki rétt sinn.
Hryðjuverkadeild bresku lögreglunnar rannsakar rapphljómsveit sem sökuð er um að styðja hryðjuverkasamtök Hamas og Hezbollah.
Eliza Reid fyrrum forsetafrú er mjög spennt fyrir gerð sjónvarpsþátta upp úr fyrstu skáldsögu sinni. Hún er nú í Kanada til að kynna bókina og verður brátt á slóðum Vestur-Íslendinga.