Kvöldfréttir útvarps

Mál Samskipa, hringvegur lokaður, áfengisneysla og heilabilun, raforkuverð og andlát Steindórs Andersen

Það er ekki í lagi rannsókn á stóru samkeppnislagabroti fyrnist hjá embætti héraðssaksóknara af því ekki var til mannafli til sinna rannsókninni. Þetta segir dómsmálaráðherra sem ætlar funda með bæði héraðssaksóknara og forstjóra samkeppniseftirlitsins um málið.

Hringvegurinn er lokaður um Mývatns- og Möðrudalsöræfi og alla leið í Egilsstaði. Fjórar björgunarsveitir á Norðausturlandi voru kallaðar út síðdegis vegna tuga bíla sem sitja fastir á milli Mývatns og Egilsstaða.

Síhækkandi raforkuverð veldur grænmetisbændum erfiðleikum og margir gætu þurft bregða búi óbreyttu segir garðyrkjubóndi í Þingeyjasýslu.

Tengsl eru á milli áfengisneyslu og heilabilunar og neysla á áfengi getur ýtt undir aðra áhættuþætti eins og þunglyndi og félagslega einangrun. Áfengisneysla meðal eldra fólks hefur aukist og öldrunarlæknir segir nauðsynlegt vekja fólk til umhugsunar um áhrif áfengis.

Steindór Andersen kvæðamaður er látinn, sjötugur aldri. Hann þótti með bestu kvæðamönnum og opnaði heim rímna og kvæðasöngs fyrir yngri kynslóðum.

Umsjón: Ásta Hlín Magnúsdóttir og Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Mark Eldred

Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir

Frumflutt

16. apríl 2025

Aðgengilegt til

16. apríl 2026
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,