• 00:11:36Eldsneytisverð í stríði
  • 00:29:24Bændur og ESB
  • 00:50:16Lygileg velgengni Laufeyjar
  • 01:15:53Gusast í fréttir vikunnar

Morgunútvarpið

Söguleg álagning á eldsneyti, bændur og ESB, Laufey og fréttir vikunnar

Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur hjá Visku stéttarfélagi, lagðist yfir eldsneytisverð og komst því verðið 20 krónum of hátt vegna álagningar sem hann fullyrðir sögulega há. Ýmislegt forvitnilegt kemur fram í greiningunni og Vilhjálmur kom til okkar í spjall og fór yfir niðurstöðurnar.

Morgunútvarpið heldur áfram yfirvegaðri umfjöllun um kosti og galla við aðild Evrópusambandinu og í dag heyrum við í Margréti Ágústu Sigurðardóttur, framkvæmdastjóra Bændasamtakanna. Þar er fólk ekki spennt fyrir aðild en þau segjast þó ekki leggjast gegn því þjóðin fái kjósa um áframhald viðræðna. Við ræddum málið við Margréti Ágústu.

Laufey kemur fram á tvennum tónleikum í Kórnum um helgina eftir hafa farið sigurför um Bandaríkin og Evrópu, þar sem hún hefur komið fram í stærstu og þekktustu tónleikahöllum heims. Velgengni Laufeyjar er lyginni líkust og við hljótum velta fyrir okkur hvenær hún verður innsigluð sem stærsta tónlistarstjarna Íslandssögunnar, ef hún er ekki þegar komin á þann stall. Við fengum Arnar Eggert Thoroddsen, tónlistarrýni til fjölda ára, til rýna í Laufey með okkur og svara stóru spurningunum.

Ristastór fréttavika baka en það er alltaf skemmtilegast fara yfir málin með fyndnu fólki. Þess vegna fengum við til okkar Birnu Rún Eiríksdóttur og Bolla Bjarnason en ásamt því vera bæði uppistandarar eru þau saman með hlaðvarpið Gusan.

Birt

13. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,