Hjalti Óskarsson, hagfræðingur hjá Landsbankanum, verður gestur okkar í upphafi þáttar þegar við ræðum nýja úttekt bankans um loðnuveiðar.
Við ætlum að fræðast um Mannfjöldasjóð Sameinuðu Þjóðanna og stöðu mannfjöldaþróunar fyrir árið í ár. Eva Harðardóttir og Vala Karen Viðarsdóttir hjá Félagi Sameinuðu þjóðanna koma til okkar.
Þorleifur Þorleifsson sigurvegari í Íslandshluta heimsmeistaramóts landsliða í bakgarðshlaupum kemur til okkar.
Nokkuð hefur verið rætt og deilt um framboð verkalýðsforingja til Alþingiskosninganna í nóvember en Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, Kristján Þórður Snæbjörnsson, formaður Rafiðnaðarsambandsins og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hafa öll gefið kost á sér. Við ætlum að ræða við Sigurð Pétursson, sagnfræðing sem mikið hefur skrifað um verkalýðsmál, um framboð sem þessi og setjum í sögulegt samhengi.
Jón Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands og sérfræðingur í málefnum Rússlands, verður gestur okkar eftir fréttayfirlitið hálf átta þegar við ræðum Briks-ráðstefnuna sem stendur nú yfir í Rússlandi og stöðu stríðsins í Úkraínu.
Matarkarfan hefur hækkað samkvæmt tölum verðlagseftirlits ASÍ. Benjamin Julian hjá ASÍ lítur við hjá okkur og ræðir málið.