Tollahnútur ganga á milli Kína og Bandaríkjanna og nýir og hættulegir ópíóíðar vekja ugg
Bandaríkjaforseti linnir ekki yfirlýsingum um frekari tollheimtu. Hann ætlar að leggja 50% viðbótartolla á kínverskar vörur ef Kínverjar leggja refsitolla á bandarískar vörur.
Heilbrigðisráðuneytið efndi til skyndifundar í dag vegna innflutnings á ólöglegum og lífshættulegum ópíóíða. Starfsfólk í skaðaminnkandi úrræðum finnur fyrir auknum áhuga á uppruna efna.
Öryggismyndavélakerfi í Reykjavík er í ólestri, fjórðungur véla er ekki virkur og það getur haft áhrif á rannsóknir lögreglu.
Mikill meirihluti Íslendinga er hlynntur aðild að Atlantshafsbandalaginu, samkvæmt nýrri könnun Gallups