Morgunútvarpið

16. okt. -Átök og friður, Optimus og framboðstónlist.

Geir Sigurðsson, prófessor við Háskóla Íslands og sérfræðingur í málefnum Kína, verður gestur okkar í upphafi þáttar. Metfjöldi herþota var notaður við umfangsmikla heræfingu við Taívan í fyrradag sem sagt er hafi átt líkja eftir árás á ríkið.

Við höldum áfram ræða þingrof og komandi kosningar eftir fréttayfirlitið hálf átta. Við ætlum ræða tónlistarnotkun í kosningabaráttu og frumsamin lög og texta sem flokkarnir hafa notað í gegnum tíðina við Arnar Eggert Thoroddsen, aðjúnkt í félagsfræði við Háskóla Íslands og tónlistarsérfræðing.

Jónas G. Allansson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, verður gestur okkar fyrir átta fréttir þegar við ræðum varnarmál hér á landi eftir fundi hans með yfirmönnum hermála Norðurlandanna og formanni bandaríska herráðsins.

Við ræðum friðarverðlaun Nobels, handhafa þeirra í ár og samhengið við Stefán Pálsson sagnfræðing og friðarsinna.

Hafsteinn Einarsson, dósent í tölvunarfræði við Háskóla Íslands og sérfræðingur í gervigreind, ræðir við okkur um Teslu Optimus-vélmennin sem Elon Musk kynnti frekar um helgina. Musk segir gervigreindarvélmennið eiga eftir verða stærsta vara allra tíma, og telur líklegt þau verði komin inn á heimili innan tveggja ára.

Ummæli Einars Þorsteinssonar um starfsaðstæður kennara á ráðstefnu Sambands sveitarfélaganna hafa vægast sagt farið öfugt ofan í stéttina sem stendur í virkri kjarabaráttu. Við ræðum við Kristínu Björnsdóttur formann Kennarafélags Reykjavíkur.

Frumflutt

16. okt. 2024

Aðgengilegt til

16. okt. 2025
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Ingvar Þór Björnsson.

Þættir

,