Við heyrum í Einari Bjarnasyni rekstrarstjóra skíðasvæðisins í Bláfjöllum og tökum stöðuna.
Í vikunni hefur talsvert verið fjallað um væntanlega hækkun á verði hinna ýmsu neytendavara. Hvenær hættir eitthvað að vera hækkanastemmning og fer að verða samráð? Páll Gunnar Pálsson forstjóri Samkeppniseftirlitsins kemur til okkar.
Heiðar Ingi Svansson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, ræðir við okkur um jólabókaflóðið og bókamarkaðinn þetta árið.
Bragi Valdimar Skúlason, formaður Félags tónskálda og textahöfunda, verður gestur okkar eftir átta fréttir þegar við ræðum jólalög.
RÚV býður landsmönnum að velja orð ársins og nú er hægt að kjósa á milli tilnefndra orða á vefnum. Við ræðum orðin og árið við Önnu Sigríði Þráinsdóttur, málfarsráðunaut Ríkisútvarpsins.
Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, verður gestur okkar í lok þáttar þegar við ræðum bresk stjórnmál, og sérstaklega vinsældir Nigels Farage og flokks hans Reform UK. Bandaríski milljarðamæringurinn Elon Musk, sem starfar nú með Donald Trump Bandaríkjaforseta, hefur lýst yfir stuðningi við flokkinn og greint hefur verið frá því í fjölmiðlum að hann íhugi að styðja Farage um allt að 14 milljarða króna.
Frumflutt
19. des. 2024
Aðgengilegt til
19. des. 2025
Morgunútvarpið
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál.