• 00:13:01Hamingjan í samtengdum heimi
  • 00:29:14Ari Eldjárn og týndu spólurnar
  • 00:48:39Inn í mannhvolfið
  • 01:13:30Fréttir vikunnar

Morgunútvarpið

Bragi Páll um Inside The Manosphere,týndu spólurnar og tengsl samfélagsmiðla og hamingju

Alþjóðadagur hamingjunnar er í dag og af því tilefni verður Morgunútvarpið í einstaklega góðu skapi. Háskóli Íslands ætlar líka halda málþing um tengsl samfélagsmiðla og hamingju þar sem verður meðal annars fjallað um hvernig hægt er nýta tæknina á jákvæðan hátt til styðja við hamingju og vellíðan. Vala Karen Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri félags Sameinuðu þjóðanna og Mia Ðuric, nemandi Menntaskólans í Reykjavík, halda erindi á málþinginu og kíktu til okkar og sögðu okkur frá hamingjunni í samtengdum heimi.

Þættirnir Stjörnubíó hafa vakið verðskuldaða athygli en í lokaþættinum á laugardaginn verður tekin fyrir kvikmyndin Englar alheimsins eftir Friðrik Þór Friðriksson. Við í Morgunútvarpinu heyrðum það væri áhugaverð saga á bakvið efni sem var tekið upp bakvið tjöldin samliða myndinni sem fannst nýlega eftir mikla leit. Við fengum Ara Eldjárn til segja okkur þessa sögu.

Heimildarmynd breska blaðamannsins Louis Theroux, Inside the Manosphere fer með himinskautum á Netflix. Myndin fjallar um umdeilda áhrifavalda sem reyna höfða til ungra karla með því boða einstaklingshyggju, græðgi, ofur-íhaldssamar hugmyndir um karlmennsku í bland við kvenfyrirlitningu, hommahatur og rasisma. Við heyrðum í rithöfundinum og samfélagsrýninum Braga Páli Sigurðarsyni og spjölluðum við hann um myndina, sem trónir á toppi vinsældarlista Netflix yfir það sem Íslendingar eru horfa á.

Tíðindamikil vika baki og fengum til okkar þá Baldvin Þór Bergsson, sem undirbýr umræðuþáttinn Torgið sem fjallar næst um ESB og Jóhann Alfreið Kristinsson, sem er ávallt með mörg járn í eldinum og kemur fram í þættinum Taskmaster á Sýn, til fara yfir það helsta sem var í fréttum.

Birt

20. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,