Kvöldfréttir útvarps

Norðanhvellur og óvissustig, Oscar Florez ekki fluttur úr landi

Fólki er ráðið frá ferðalögum á meðan norðanáhlaup gengur yfir landið. Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir á Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi og Suðurlandi.

Allt bendir til þess Alþingi veiti Oscari Flores, 17 ára kólumbískum dreng ríkisborgararétt segir formaður allsherjar- og menntamálanefndar. Brottflutningi hans var frestað í dag.

Samfylkingin mælist enn stærst í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup og er yfir þrjátíu prósentum. Fylgi Framsóknarflokksins hefur ekki mælst minna frá því þjóðarpúlsinn hóf göngu sína fyrir þrjátíu og þremur árum.

Egypskur karlmaður hefur verið ákærður fyrir hatursglæp eftir hann varpaði molotov-sprengju hópi fólks í Colorado í Bandaríkjunum. Það var saman komið til krefjast frelsunar ísraelskra gísla sem eru í haldi Hamas-samtakanna á Gaza.

Frumflutt

2. júní 2025

Aðgengilegt til

2. júní 2026
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,