Eldsneytisverð lækkar - Líkamsárás í Kópavogi - Sjóslysarannsókn sýnir brotalamir.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra býst við að fyrirhuguð lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti, sem er nú til umræðu á Alþingi, muni skila árangri.
Drengur á táningsaldri var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans eftir að hópur ungmenna veittist að honum við Hamraborg í Kópavogi
Rannsóknarnefnd samgönguslysa segir marga annmarka á frágangi björgunarbáts á strandveiðibáti sem sökk í mynni Patreksfjarðar í júní 2025. Óskráðar breytingar á bátnum drógu einnig úr stöðugleika hans.
Framsóknarflokkurinn kynnti áherslumál sín fyrir komandi borgarstjórnarkosningar í dag.