Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir 19. maí 2025

Utanríkisráðherra segir ljóst Ísraelar brjóti alþjóðalög með því hleypa ekki mannúðaraðstoð inn á Gaza. Hún er meðal tuttugu og tveggja utanríkisráðherra sem skrifa undir nýja áskorun til ísraelskra stjórnvalda.

Bandaríkjaforseti fullyrðir viðræður milli Rússlands og Úkraínu um vopnahlé muni hefjast þegar í stað. Hann ræddi við Rússlandsforseta í síma í tvær klukkustundir í dag.

Formaður Keilusambands Íslands segir áfengisneyslu á íþróttaviðburðum hafa verið vandamál í mörg ár. Byrjað á öfugum enda með því samræma reglur um áfengisveitingar.

Verð á matvælum hefur farið hækkandi frá áramótum. Íslenskt nautakjöt hefur í einstaka tilfellum hækkað um allt 20 prósent.

Heimsmarkaðsverð á kaffi hefur hækkað mikið frá áramótum. Íslenskur kaffiframleiðandi segir áhrifanna gæta hjá smærri söluaðilum enda verðlag ávallt í takt við innkaupaverð

Frumflutt

19. maí 2025

Aðgengilegt til

19. maí 2026
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,