Við héldum áfram að taka púlsinn á þeim hátíðum sem fram fara um verslunarmannahelgina. Í dag forvitnuðumst við um Sæludaga í Vatnaskógi en Geirlaugur Ingi Sigurbjörnsson verkefnastjóri Sæludaga sagði okkur allt um þá.
Til að rýna í veðurspána fyrir helgina, sem er nauðsynlegt fyrir hverja verslunamannahelgi, þá heyrðum við í Einari Sveinbjörnssyni, veðurfræðingi hjá blika.is.
Stærsta ferðahelgi ársins er fram undan. Öll viljum við koma heil heim og ekki síður koma til baka heim í öryggið sitt eftir ferðalagið án þess að hafa lent í innbroti eða einhverju álíka. Eyþór Víðisson, öryggis- og löggæslufræðingur fór yfir nokkra punkta sem gott er að hafa í huga þegar við erum að heiman.
Við héldum áfram að ræða vindorkuna, eins og við höfum gert þessa vikuna. Það eru ýmis vindorkuver á hugmynda- og teikniborði, og ráðherra hefur lagt fram tillögur að stefnu stjórnvalda í virkjun vindorku. Þetta þýðir ekki að vindorkuverin séu öll á borði Landsvirkjunar, heldur koma þarna líka til erlend fyrirtæki. Unnur María Þorvaldsdóttir, forstöðumaður þróunar vindorku hjá Landsvirkjun, var á línunni hjá okkur og sagði okkur frá áformum Landsvirkjunar í þessum málum.
Og til að ræða fréttir vikunnar komu svo til okkar þær Nina Richter, laganemi og fjölmiðlakona, og Þórhildur Þorkelsdóttir, framkvæmdastjóri Brú Strategy og fyrrverandi fréttamaður bæði hér á RÚV og á Stöð 2.
Lagalisti:
Sólstrandargæjarnir - Sólstrandargæji
Júníus Meyvant - Neon Experience
Elton John - Goodbye Yellow Brick Road
Bubbi Morthens - Tveir tveir fjórir
Dusty Springfield - Son Of A Preacher Man
Ríó - Dýrið Gengur Laust