Morgunútvarpið

24. okt. -Kjaramál, framboð frægra og flugvallarmál

Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri innanlandsflugvalla Isavia, verður gestur okkar í upphafi þáttar en félagið undirbýr núna afhendingu flugvallarlands í Skerjafirði til Reykjavíkurborgar með færslu flugvallargirðingar í samræmi við tilmæli innviðaráðherra í síðasta mánuði.

Hreinar vaxtatekjur Landsbankans á árinu nema 44,1 milljarði króna eða sem nemur tæplega fimm milljörðum á mánuði meðaltali. Þetta kemur fram í tilkynningu bankans til Kauphallar. Vilhjálmur Birgisson hefur skoðanir á hagnaði bankanna. Hann verður á línunni.

Við höldum síðan áfram ræða kjaradeilu kennara og sveitarfélaga, í þetta skiptið með Ingu Rún Ólafsdóttur, formanni samninganefndar sveitarfélaga, sem segist alls ekki bjartsýn á verkföllum verði aflýst.

Sigrún Ólafsdóttir, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, verður gestur okkar eftir átta fréttir. Hún heldur í dag fyrirlestur um áhrif auðmagns og stéttaskiptingar á heilsu.

Í dag er slétt ár frá því stærsti baráttufundur Íslandssögunnar, kvennaverkfallið, var haldinn. Minna hefur farið fyrir kvennaverkfalli í ár. En hvað hefur gerst á þessu ári og hvert er stefnan tekin? Sonja Ýr Þorbergsdóttir lítur við hjá okkur.

Nokkuð hefur verið rætt um framboð Ölmu Möller og Víðis Reynissonar til Alþingis. Þau leiddu okkur í gegnum kórónuveirufaraldurinn og sumum þykir gera þurfi upp þann tíma betur - líkt og Bretar hafa gert - og Samfylkingin þurfi þá hluta svara fyrir ákvarðanir sem teknar voru á þessum tíma. Við ræðum þau mál við Henry Alexander Henryson, siðfræðing.

Tónlist:

ELÍN HALL - Vinir.

Lumineers, The, Bay, James, Kahan, Noah - Up All Night.

Bríet - Fimm.

KK BAND - Álfablokkin.

GDRN - Parísarhjól.

Mammaðín - Frekjukast.

ÞURSAFLOKKURINN - Gegnum Holt Og Hæðir.

Frumflutt

24. okt. 2024

Aðgengilegt til

24. okt. 2025
Morgunútvarpið

Morgunútvarpið

Þættir

,