Pan Thorarensen er með afbrigðum afkastamikill sem tónsmiður og útgefandi; á síðustu árum hefur hann komið að nærfellt hundrað útgáfum, ýmist sem tónlistarmaður eða sem útgefandi. Hann byrjaði í hiphpopi en sneri sér svo að raftónlist, stofnaði Stereo Hypnosis með föður sínum, sem hefur verið hans aðal upp frá því, er líka í tilraunakennri tékkneskri hjómsveit sem kortleggur framtíðina og tekur þátt í allskyns samstarfi öðru.
Frumflutt
21. maí 2024
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Straumar
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson