Dauðarokk + jazz = Dauðajazz
Þorkell Ragnar Grétarsson ætlaði að verða dauðarokkari en fékk ekki að hætta í gítarnáminu og þurfti fyrir vikið meðal annars að spila með stórsveit austur á Hornafirði. Á endanum…
Ólaf Örn Josephsson þekkja flestir væntanlega sem Stafrænan Hákon, en undir því nafni hefur hann gefið út grúa af plötum á síðustu áratugum. Ólafur er þó ekki bara Stafrænn Hákon heldur hefur hann gefið út plötu sem OPandolo, haldið úti Calder með Lárusi Sigurðssyni og starfað í hljómsveitunum Per:Segulsvið, Haugum, S-Fit, Yfirliði, Náttfara og Vogor. Á nýrri plötu Stafræns Hákonar rifjar Ólafur upp gamalt stuð.

Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson