Tónsmíðar hljóðfærasmiðs
Jóhann Gunnarsson lék á bassa með ýmsum hljómsveitum forðum daga, en sneri sér síðan að hljóðfærasmíði. Hann hætti þó ekki að fást við tónlist og samhliða smíðinni hefur hann samið…
Tónlistarhátíðin Myrkir músíkdagar 2026 hófust í Borgarbókasafni Reykjavíkur í Grófinni með tveimur innsetningum. Aðal dagskrá hátíðarinnar hefst fimmtudaginn 29. janúar, en hátíðin stendur til sunnudags, 1. febrúar. Í þættinum er rætt við Sólveigu Steinþórsdóttur og Þóru Kristínu Gunnarsdóttur úr píanókvartettinum Neglu, Harald Jónsson, Björk Níelsdóttur úr Dúplum Dúó og Bergrúnu Snæbjörnsdóttur.
Lagalisti:
Enigmatic Resonance - Slow Waves
Michelle Lou - Lie Beneath the Grass
Lee Hoiby - Dark Rosaleen
Live in Amsterdam - Ballad of a Never-ending Elevator Accident
Sveinn Lúðvík Björnsson - Sonnetta nr 39

Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson