Veiðigjaldsfrumvarpið varð í dag mest rædda málið á þingi síðan málstofur voru sameinaðar. Störukeppni og málþóf heldur áfram við Austurvöll.
Sveitarstjóri Rangárþings eystra útilokar ekki að hætt verði við áform um verslunar- og þjónustusvæði við Holtsós undir Eyjafjöllum. Ljóst sé að gera verði breytingar eftir fjölmargar athugasemdir lögaðila og íbúa í sveitinni.
Formaður Neytendasamtakanna segir stjórnleysi ríkja í bílastæðamálum við Keflavíkurflugvöll. Eigandi bílastæðaþjónustu-fyrirtækis vill semja við Isavia um breytt fyrirkomulag.
Innviðaráðherra segir viðhaldsskuld vegakerfisins vera gríðarlega. Þriggja milljarða aukafjárveiting er til viðhalds á vegum. Ráðherra segir brýnustu viðhaldsþörfina á Vestur- og Suðurlandi.