Efnaskiptaaðgerðum fækkar, stjórnvöld geta sett skilyrði fyrir skipakomum og baráttan um Hormússund heldur áfram
Vinsældir þyngdarstjórnunarlyfja hafa leitt til fækkunar efnaskiptaaðgerða, segir kviðarholsskurðlæknir. Efnaskiptaaðgerðir voru rúmlega þúsund árið 2021 en um 400 í fyrra.
Sóttvarnalæknir segir að skemmtiferðaskipinu Hondius verði ekki hleypt að bryggju nema að uppfylltum ströngum skilyrðum. Þrír farþegar hafa látist um borð vegna hantaveiru.
Annan daginn í röð segjast Sameinuðu arabísku furstadæmin verjast árásum frá Íran. Bandaríkjaforseti svaraði því ekki hvað teldist brot á vopnahléssamningi.
Mengun frá fiskeldisstöðvum við strendur Noregs er í nýrri skýrslu sögð jafnast á við óhreinsað skólp frá þjóð á stærð við Ástralíu.
Afglæpavæðing fíkniefna er ekki til skoðunar hjá heilbrigðisráðuneytinu segir ráðherra. Forvarnir og víðtæk nálgun séu nauðsynleg til að takast á við fíknivandann.