Dæmi eru um að fólk á vegum erlendra brotahópa þekki íslenskt lagaumhverfi betur en þeir sem hér búa, að sögn yfirlögfræðings hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum. Hún segir allar glufur í kerfinu nýttar.
Forsætisráðherra segir verðbólgu eitt af stóru verkefnum fjárlagagerðar í haust, en hún verður nærri fjórum prósentum í ár samkvæmt nýrri þjóðhagsspá.
Rússar gerðu umfangsmestu árás innrásarstríðsins til þessa á höfuðborg Úkraínu, Kyiv, og íbúðabyggð í Kherson-héraði. Forsetar Bandaríkjanna og Úkraínu náðu samkomulagi um að efla loftvarnir Úkraínu.
Atvinnuvegaráðherra hefur aukið strandveiðikvóta um tíu prósent. Skipt var á sumargotssíld og þorski til að bæta stöðuna á yfirstandandi fiskveiðiári.
Samfylkingin mælist stærst flokka í borginni samkvæmt nýrri skoðanakönnun.
Og Félag kvenna í tónlist gerir athugasemd við karllæga dagskrá Kótelettunnar á Selfossi um næstu helgi. Aðeins tvær konur er að finna í 34 auglýstum atriðum á hátíðinni.
Umsjón: Brynjólfur Þór Guðmundsson og Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Stjórn útsendingar: Védís Kalmansdóttir