Kvöldfréttir útvarps

Staðan á Alþingi og hvað tefur nýjan Landspítala

Forsætisráðherra segir ekki langt í land við samningum um þinglok þótt ríkisstjórnin leggi áherslu á veiðigjaldið. Formaður Sjálfstæðisflokksins segir minnihlutann ekki geta samþykkt það í núverandi mynd og næstu sólarhringar skeri úr um málalok.

Framkvæmdir við Nýja Landspítalann gengu ekki jafn hratt og vonast var til. Þetta segir framkvæmdastjóri spítalans. Tafir megi rekja til flækjustigs byggingarinnar og umfangs verkefnisins.

Hátt hlutfall innflytjenda í íslenskum skólum hefur ekki neikvæð áhrif á árangur innfæddra, samkvæmt nýlegri skýrslu OECD. Þar kemur einnig fram frammistaða 15 ára hafi versnað, sérstaklega í lesskilningi, og Ísland verulega undir meðaltali OECD.

Félag íslenskra atvinnuflugmanna sakar stjórnvöld um sýna flugmönnum Landhelgisgæslunnar virðingarleysi. Fimm ár eru síðan

Frumflutt

3. júlí 2025

Aðgengilegt til

3. júlí 2026
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,