Kvöldfréttir útvarps

Fjölskylda Jóns Þrastar treystir írsku lögreglunni og reynt að semja um þinglok

Írska lögreglan telur svarið við hvarfi Jóns Þrastar Jónssonar, sem hvarf í Dyflinni fyrir sex árum, finna hér á landi. Bróðir Jóns segir traust fjölskyldunnar til rannsóknarinnar hafa aukist.

Þingfundi var frestað í fjórgang í dag - formenn þingflokka freista þess komast samkomulagi um þinglok. Fyrrverandi forseti Alþingis segir Alþingi í vanda.

Ársverðbólga jókst um 0,4 prósentustig milli mánaða. Fjármálaráðherra segir tölurnar vonbrigði og ákveðnar vísbendingar séu um undirliggjandi vandamál sem þurfi leysa.

Hæstiréttur Bandaríkjanna úrskurðaði í dag einstakir alríkisdómarar geti ekki sett lögbann á forsetatilskipanir á landsvísu. Gildistöku þó-nokkurra tilskipana hefur verið frestað með lögbanni.

Íslendingar snúa vörn í sókn gegn lúsmýinu. Sala á vörum við og gegn lúsmýbiti hefur tvöfaldast milli ára.

Frumflutt

27. júní 2025

Aðgengilegt til

27. júní 2026
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,