Kvöldfréttir útvarps

NATO, þinglok, flóttafólk frá Gaza, riðulaust Ísland, kosningar í New York

Leiðtogar Atlantshafsbandalagsríkja komu sér í dag saman um stóraukin útgjöld til varnarmála. Donald Trump Bandaríkjaforseti fagnaði sigri fyrir Bandaríkin, Evrópu og vestræna menningu.

Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis segist viss um vilji til þess semja um þinglok svo sómi fyrir Alþingi. Staðan þó vissulega flókin.

Sextán manns frá Gaza eru á leið til Íslands með aðstoð utanríkisráðuneytisins. Fólkið hefur fengið dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar.

Landsáætlun um útrýmingu riðuveiki, sem hófst hér á landi fyrir þremur árum, miðar vel. Áætlað er um tíu prósent af íslenska sauðfjárstofninum með verndandi eða mögulega verndandi gen gegn riðu.

Fjármálaeftirlit Seðlabankans hefur lokið máli varðandi lögbrot Íslenskra verðbréfa með sátt, og sektað fyrirtækið um 20 milljónir króna.

Ungur frjálslyndur ríkisþingmaður af innflytjendaættum er í lykilstöðu til verða næsti borgarstjóri New York-borgar. Hann skákaði fyrrverandi ríkisstjóra í forvali Demókrata.

Umsjón: Þorgils Jónsson og Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Mark Eldred

Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir

Frumflutt

25. júní 2025

Aðgengilegt til

25. júní 2026
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,