Kvöldfréttir útvarps

Leggur til lagabreytingu eftir mál Bryndísar Klöru

Dómsmálaráðherra leggur til lagabreytingar eftir mál Bryndísar Klöru Birgisdóttur sem stungin var til bana á Menningarnótt í fyrra.

Sveiflu greina á íslenskum fasteignamarkaði í ár samkvæmt nýútgefinni mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Hagfræðingur hjá stofnuninni segir sveifluna meðal annars mega rekja til mikilla kaupa Grindvíkinga á fasteignum í fyrra.

Kröfu flugstjóra um greidda 80 milljóna króna skírteinistryggingu vegna ADHD greiningar var hafnað fyrir dómi. Greininguna fékk hann eftir eitt viðtal við lækni skömmu eftir hafa verið sagt upp starfi.

Þingmenn á breska þinginu samþykktu í dag frumvarp sem leyfir dánaraðstoð fyrir dauðvona sjúklinga á Englandi og í Wales.

Frumflutt

20. júní 2025

Aðgengilegt til

20. júní 2026
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,