Kvöldfréttir útvarps

Stríð í Úkraínu, mannskæðar árásir Ísraelshers, aukin samvinna Íslands og ESB, þúsundir Afgana til Bretlands og loftslagsvá á Torres-sundi

Rússar hafa aukið hergagnaframleiðslu sína mikið síðastliðið ár og geta því sent tífalt fleiri dróna til Úkraínu en á sama tíma í fyrra. Síðasti mánuður var mannskæðasti í Úkraínu í þrjú ár .

Ísraelsher hefur drepið tugi Palestínumanna með árásum á Gazaborg í dag, og einnig gert mannskæðar árásir á Líbanon og Sýrland.

Ísland og Evrópusambandið undirrituðu í dag samkomulag um aukna samvinnu um sjálfbærar fiskveiðar og málefni hafsins. Atvinnuvegaráðherra ræddi einnig verndun og velferð hvala við fulltrúa framkvæmdastjórnar ESB.

Ástralska stjórnin ber ekki ábyrgð á verndun eyja í Torres-sundi fyrir áhrifum loftslagsbreytinga. Þetta er niðurstaða áfrýjunarréttar. Leiðtogar þjóðflokka á eyjunum eru miður sín yfir úrskurðinum.

Umsjón: Róbert Jóhannsson og Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Stjórn útsendingar: Védís Kalmansdóttir

Frumflutt

15. júlí 2025

Aðgengilegt til

15. júlí 2026
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,