Kvöldfréttir útvarps

Þinglok verða ekki í bráð

Allt er í hnút á Alþingi og alls óvíst hvenær hægt verður slíta þingi. Umræðan um veiðigjaldsfrumvarp ríkisstjórnarinnar stendur enn og er orðin næstlengsta umræðan á þingi frá 1991.

Verkefnisstjóri Hvammsvirkjunar segir allar undirbúningsframkvæmdir sem eiga sér stað við svæði Hvammsvirkjunar í samræmi við framkvæmdaleyfi frá sveitarfélögunum. Íbúar á svæðinu kvarta undan sprengingum sem trufla hesta.

Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps. Hann stakk tvo menn með hnífi á Kjalarnesi síðastliðna nýársnótt.

Innan Evrópusambandsins er verið skoða breytingar á reglum um réttindi flugfarþega. Evrópuþingið leggur til bannað verði krefjast aukagjalds fyrir handfarangur.

Tveir rússneskir embættismenn tengdir samgöngukerfi landsins létu lífið í dag. Andlát þeirra vekur spurningar, enda var mikið ólag á samgöngumálum um helgina.

Frumflutt

7. júlí 2025

Aðgengilegt til

7. júlí 2026
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,