Kvöldfréttir útvarps

Framkvæmdastjóri ferðaþjónustufyrirtækis segir tafir í landamæraeftirliti á Keflavíkurflugvelli hafa bitnað á rekstrinum, Ísraelsher handtók tugi Palestínumanna á Vesturbakkanum og færst hefur í aukana að fólk komist ekki leiðar sinnar á landsbyggðinni því varadekk fylgja æ sjaldnar með nýjum bílum.

Tafir í landamæraeftirliti á Keflavíkurflugvelli geta valdið miklum kostnaði og óþægindum fyrir ferðaþjónustufyrirtæki því erlendir ferðamenn þurfa breyta ferðaáætlunum sínum og afbóka ferðir segir framkvæmdastjóri hjá Snæland Grímsson.

Ísraelsher handtók tugi Palestínumanna á Vesturbakkanum í dag eftir minnst fjórir Palestínumenn og tveir ísraelskir hermenn létust í skotbardaga. Forsætisráðherra Ísraels hét harkalegum viðbrögðum við atvikinu.

Mikið álag er vegna dekkjaskipta á bifvélaverkstæðum á landsbyggðinni yfir sumartímann. Varadekk fylgja sjaldnast nýjustu bílunum.

Rúmenar skutu niður dróna sem rauf lofthelgi landsins í dag, annan daginn í röð. Dróninn var skotinn niður af F-sextán orrustuþotu.

Bæjarhátíðin Mærudagar er haldin á Húsavík um helgina. Bergþór Bjarnason sveitarstjóri Norðurþings segir hátíðina hafa gengið vel fyrir sig í dag; þrátt fyrir veðrið hefði mátt vera betra framan af.

Umsjón: Hugrún Hannesdóttir Diego

Tæknimaður: Marteinn Marteinsson.

Stjórn útsendingar: Hildur Sigurbergsdóttir.

Birt

25. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,