Við ætlum að ræða mikla gróðurelda í Portúgal í upphafi þáttar en rauðu neyðarstigi hefur verið lýst yfir þar í landi og óskað eftir aðstoð Evrópusambandsins til að styðja við slökkvistarf. Við ræðum við Lindu Kristínu Ragnarsdóttur sem er búsett í Castelo Branco í Portúgal.
Bandaríska stórfyrirtækið Amazon hefur gefist upp á fjarvinnu og krefst þess nú að starfsmenn mæti á skrifstofuna fimm daga vikunnar - en nokkur bandarísk fyrirtæki hafa farið sömu leið að undanförnu. Við ræðum við Adríönu Karólínu Pétursdóttur, formann Mannauðs, um þessar breytingar og áhrif þeirra.
Kjartan Orri Þórsson, kennari við Háskóla Íslands og sérfræðingur í málefnum Írans, verður gestur okkar korter í átta. Nýr forseti landsins sagði á mánudag siðgæðislögregluna ekki lengur skipta sér af höfuðslæðum kvenna, en 34 konur hófu um helgina hungurverkfall til að vekja athygli á því að áfram þurfi að berjast fyrir kvenréttindum í Íran.
Þýskir fjölmiðlar krefjast þess að fá að senda fréttamenn til Gaza. Í sameiginlegrar kröfu þeirra til Ísraelsstjórnar segja þeir nær algjört fjölmiðlabann nær fordæmalaust á síðari árum. Meðal þeirra sem þess krefjast eru Der spigel, Die Welt og ríkismiðlarnir ARD and ZDF. Við ræðum málið við Valgerði Önnu Jóhannsdóttur, dósent við Háskóla Íslands.
Það er óneitanlega drungi yfir samfélaginu núna vegna ýmissa erfiðra frétta undanfarið. Sturla Brynjólfsson, sálfræðingur hjá Litlu kvíðameðferðastöðinni, verður gestur okkar eftir fréttayfirlitið hálf níu og ætlar að ræða við okkur um líðan þjóðar og hvernig best sé að hlúa að geðheilsunni þegar erfið mál einkenna umræðuna.
Umhverfisstofnun hefur að undanförnu rannsakað magn PCB-mengunar í eggjum og silungi á Heiðarfjalli og í Eiðisvatni á sunnanverðu Langanesi. Vitað er að mikið magn spilliefna er á Heiðarfjalli eftir að þar var starfrækt ratsjár- og fjarskiptastöð Bandaríkjahers á árunum 1957-1970. Nýlegt áhættumat sýndi m.a. að fiskur á svæðinu inniheldur PCB í magni langt umfram þolanleg mörk daglegrar neyslu. Við ræðum toxískar leifar bandaríkjahers við Kristínu Kröyer, sérfræðing í mengunareftirliti hjá Umhverfisstofnun.