ok

Kvöldfréttir útvarps

Ekkert samkomulag um þinglok, lúsmý og mansal í miðborginni

Þrír voru handteknir í aðgerðum lögreglu sem tengjast veitingastað í miðbæ Reykjavíkur í dag. Aðgerðirnar tengjast meðal annars gruni um vinnumansal á staðnum.

Búist er við að þingfundur standi fram á kvöld en þriðja umræða um útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra stendur nú yfir. Ekkert samkomulag liggur fyrir um afgreiðslu mála og þinglok.

Verja á tæpum hálfum milljarði í kaup á búnaði til að kæla hraun við Grindavík og Svartsengi. Búnaðinn á að nota þar sem ekki eru varnargarðar eða þeir duga ekki til að verja mikilvæga innviði.

Ekki hefur tekist að finna uppeldisstöðvar lúsmýs á Íslandi. Lagning á klakgildrum í ferskvatni á borð við vötn, læki og mýrar bar ekki árangur.

Frumflutt

13. júní 2024

Aðgengilegt til

13. júní 2025
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,