Kvöldfréttir útvarps

Rekstur borgarinnar, banamanns Charlies Kirks leitað og samdráttur í byggingariðnaði viðbúinn segir verktaki

Borgarstjóri segir rekstur borgarinnar í jafnvægi þótt lífeyrisskuldbindingar vegna kennara hafi vegið þungt í 6 mánaða uppgjöri. Oddviti Sjálfstæðisflokksins segir fara þurfi ofan í saumana á útgjöldum hjá borginni.

Mannsins sem skaut bandaríska áhrifavaldinn Charlie Kirk er enn leitiað.

Samdráttur í byggingariðnaði var fyrirsjáanlegur segir verktaki. Aðföng og álögur hafi hækkað.

Fjármálaráðherra mælti fyrir fjárlagafrumvarpinu á Alþingi í dag við misjafnar undirtektir.

Franskir þingmenn leggja til samfélagsmiðlar verði bannaðir börnum yngri en 15 ára. Tilefnið er myndskeið á TikTok sem talin eru skaðleg börnum.

Frumflutt

11. sept. 2025

Aðgengilegt til

11. sept. 2026
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,