Heimskviður

Sumarheimskviður - Einræðisherrar

Einræðisherrar verða fyrirferðamiklir í þætti dagsins. Við fjöllum um svalasta einræðisherra heims, eigin sögn, og svo þann sem virðist vilja feta í fótspor hans með svo margt, og þeirra nána samband. fyrrnefndi en Nayib Bukele, forseti El Salvador og síðarnefndi er Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.

Á stuttum stjórnmálaferli hefur Nayib Bukele gjörbreytt El Salvador, morðtíðni hefur lækkað mikið en hann hefur fangelsað rúmlega 80 þúsund manns á þremur árum. Bukele reisti risastórt fangelsi og vill taka við föngum annars staðar frá, til dæmis frá Bandaríkjunum. Þangað hefur Donald Trump sent nokkur hundruð manns, jafnvel án þess taka mál þeirra fyrir í Bandaríkjunum. Trump segist engu síður ætla senda miklu fleiri þangað. Honum líst vel á kollega sinn sem hefur aukið völdin með því breyta stjórnarskrá, til geta setið áfram, og rekið hæstaréttardómara sem honum hugnast ekki. Það segja Trump orðinn eins konar lærlingur Bukele, því margt af því sem hann hefur gert í heimalandinu langar Trump gera í Bandaríkjunum.

Frumflutt

26. júlí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,