Heimskviður

242 - Grænland, færeyska handboltaævintýrið og Beckham fjölskyldan

Ítrekuð ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta um yfirtöku á Grænlandi hafa ekki aðeins valdið stjórnmálamönnum þar áhyggjum. Almenningur er líka uggandi, og þó Trump hafi útilokað beita valdi til taka yfir Grænland er fólk enn í óvissu um framhaldið. Hallgrímur Indriðason fjallar um þetta en hann kom frá Grænlandi í síðustu viku. Hann segir okkur frá því hvernig Grænlendingum líður, talar við Grænlending sem býr hér á landi og Íslending sem býr á Grænlandi.

Við tölum líka við handboltaþjálfara í Færeyjum sem segir okkur frá ótrúlegum uppgangi handboltans þar, en Færeyingar fjölmenntu til Osló þar sem landsliðið þeirra vann sinn fyrsta leik á stórmóti. Þeir komast ekki áfram í milliriðil en hátt í sjö þúsund Færeyingar fylgdu liðinu. lokum fjöllum við svo um drama í Beckham fjölskyldunni. Fjölskylduerjur fræga fólksins er nokkuð sem við höfum alla jafna skautað fram hjá í þessum þætti, en okkur langaði samt aðeins staldra við, reyna skýra hvað þarna er í gangi og kannski ekki síður af hverju allir stærstu fréttamiðlar heims eru fjalla um þetta.

Frumflutt

24. jan. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,