Heimskviður

222 - Stolnar fornminjar og ný vegferð Dr. Phil

Jarðneskar leifar eþíópísks prins og marmastyttur af sögufrægu grísku hofi eru meðal formninja sem geymdar eru í Bretlandi en eiga uppruna sinn á mun fjarlægari slóðum. Talsverður styr hefur staðið um skil á mununum, sem mörgum finnst eigi skila tafarlaust. Söfn heimsins geyma marga muni sem hvílir yfir ára samviskubits í ljósi sögunnar. En þetta er ekki alveg einfalt. Stundum eru rök þeirra sem geyma munina þau séu bjarga þeim frá eyðileggingu, sem sannarlega er oft raunin. En það er ekki endilega samasemmerki milli varðveislu um ákveðinn tíma og eign til frambúðar. Birta Björnsdóttir skoðaði málið og ræðir meðal annars við Hörðu Þórsdóttur, þjóðminjavörð.

Í síðari hluta þáttarins ætlar Oddur Þórðarsona greina vegferð eins frægasta sjónvarpsmanns heims, Dr. Phil, inn á hið pólitíska svið. Dr. Phil er hættur sálgreina gesti í sjónvarpssal og virðist vera reyna endurforrita bandarísku þjóðina með pólitískum skilaboðasendingum á nýstofnaðri sjónvarpsstöð sinni, þar sem forseta Bandaríkjanna og forsætisráðherra Ísraels hefur brugðið fyrir, auk fleiri.

Frumflutt

24. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,