Heimskviður

234 - Stríð gegn eiturlyfjum og Airbnb

Ráðamenn í Barcelona hafa lýst yfir stríði gegn Airbnb og ætla losa sig við skammtímaleigufyrirtækið á næstu tveimur til þremur árum. Mýmargar íbúðir eru leigðar út til ferðamanna í borginni sem hefur slæm áhrif á húsnæðisverð og þar með íbúa.

Svo fjöllum við um stríðið gegn eiturlyfjum. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur farið í róttækar hernaðaraðgerðir síðustu vikur sem hann segir beinast gegn flóði eiturlyfja frá rómönsku Ameríku til Bandaríkjanna. Trump segist hreinlega ætla drepa þá sem reyna smygla þaðan eiturlyfjum og það hafa verið gerðar tvær árásir í vikunni þar sem alls átján voru drepnir en enginn handtekinn. Síðustu tvo mánuði hafa rúmlega sextíu verið drepnir í svipuðum árásum og þessi aukna harka setur mikinn svip á samskipti Bandaríkjanna við stjórnvöld, til dæmis í Kólumbíu og Venesúela. Við spyrjum Dylan Herreira, doktorsnema í alþjóðastjórnmálum sem er frá Kólumbíu, hvers vegna Trump herða tökin núna.

Frumflutt

1. nóv. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,