Útvarp
Sjónvarp
Útvarp
KrakkaRÚV
UngRÚV
MenntaRÚV
Beint
RÁS 1
RÁS 2
RONDÓ
Dagskrá
Leit
Þættir
183 - Innrásin í Rafah
Rúm milljón manns í Rafah á Gaza bíður milli vonar og ótta hvort og þá hvenær allsherjarinnrás Ísraelshers í borgina hefjist. Við beinum sjónum okkar þangað í þættinum í dag. Við ætlum…
182 - Baby Reindeer og skæð fuglaflensa
Sjónvarpsþættirnir Baby Reindeer njóta mikilla vinsælda hér á landi og eru þeir vinsælustu á streymisveitunni Netflix um þessar mundir. Þættirnir segja sanna sögu ungs manns sem lendir…
181 - Kosningar í Suður Afríku og Børsen sem brann
Við fylgdumst mörg með hinni sögufrægu bygginguBørsen brenna í fréttum á dögunum. Byggingin sem fæst okkar hafa líklega komið inn í nema við höfum átt erindi við viðskiptaráð Danmerkur…
180 - Raunir Boeing og körfuboltastjarnan Caitlin Clark
Flugvélaframleiðandinn Boeing hefur verið í talsverðum vandræðum undanfarin ár. Fyrirtækið hafði átt áratuga sögu sem framleiðandi öruggra og góðra farþegavéla. Hvað fór eiginlega…
179 - Árásir á Kharkiv í Úkraínu og hin hliðin á Tene
Borgin Kharkviv er núna eitt helsta skotmark Rússa og skortur á öflugum loftvarnarkerfum hafa gert hana og ýmsa innviði í Úkraínu að auðveldari skotmörkum en áður. Rússar hafa hert…
178 - Týndu börnin í tónlistarmyndbandinu og Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
Árið 1993 kom út tónlistarmyndband við lagið Runaway Train með bandarísku hljómsveitinni Soul Asylum. Í myndbandinu voru sýndar myndir af börnum sem lýst hafði verið eftir. Mörg þeirra…
177 - Höfuðborg í heljargreipum og skuggahliðar netsins
Við skoðum baksögu óaldarinnar á Haítí sem náði hámarki fyrir nokkrum vikum þegar glæpagengi náðu stjórn í höfuðborginni Port au-Prince. Bjarni Pétur segir okkur einnig sögu valdamesta…
176 - Fólksfækkun í Japan og sprengjuleit í Úkraínu
Fólksfækkun í Japan er mun hraðari en gert var ráð fyrir og hefur mikil áhrif á samfélagið. Tölur um fjölda barna sem fæddust í Japan í fyrra voru gefnar út á dögunum og urðu víða…
175 - Fjölskyldustjórnmál á Filippseyjum og 20 ár frá sprengjuárásinni í Madríd
Á Filippseyjum fara nokkrar fjölskyldur með mestöll völd í landinu. Þær tvær sem komist hafa í hár saman að undanförnu er fjölskylda forsetans, Ferdinands Marcos, sem er alnafni föður…
174 - Stríð vegna vatns og hvarf flugvélar Malaysian Airlines
Öldum saman hafa stríð verið háð vegna auðlinda og hver er ein dýrmætasta auðlind veraldar? Það er vatnið. Það þrifist ekki líf á plánetunni jörð án þess. Staðbundin átök, skærur eða…
173 - Tvö ár síðan heimsmyndin breyttist og staða bænda í Evrópu
Í dag eru tvö ár liðin frá því innrás Rússa hófst af fullum þunga inn í Úkraínu. Innrás sem mörg óttuðust að væri yfirvofandi en kom þó flestum í opna skjöldu. Við heyrum í Úkraínumönnum…
172 - Mannát og Ungverjaland
Verið er að sýna leikritið Kannibalen hér á landi sem er byggt á sönnum atburðum. Í stuttu máli fjallar það um mann sem langar til að borða annan mann og kemst í kynni við mann sem…
171 - Glæpagengi í Mexíkó og Ingebrigtsen fjölskyldan
Hvað gerir móðir þegar dóttur hennar er rænt og hún drepin af mönnum sem tilheyra skipulögðum glæpasamtökum? Vitandi af gjörspilltu og um margt lömuðu stjórnkerfi heimalands síns ákvað…
170 - Palestínuflóttamannahjálpin, skotárás í Serbíu og örlög Duffy
Það er talið að um tvær milljónir íbúa á Gasa reiði sig á UNRWA, Palestínuflóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna. Það eru hátt í níutíu prósent þeirra sem þar búa. En nú er óvissa með…
169 - Íþróttaþvætti Sádi Araba og kosningaeftirlit ÖSE
Yfirvöld í einræðisríkinu Sádi-Arabíu eru sökuð um íþróttaþvætti (sportswashing á ensku) með því að setja fjármuni í íþróttir víða um heim til að bæta ímynd sína. Þetta hefur víða…
168 - Saga Húta og Jemen og staða grænlenskunnar
Árásir Húta á Rauðahafi og árásir Bandaríkjamanna og Breta á Húta á móti hafa verið talsvert í fréttum það sem af er þessu ári og enginn friður í augsýn þar frekar en annars staðar…
167| Hvað er framundan árið 2024?
Í þessum síðasta þætti ársins 2023 horfa Heimskviður til framtíðar, nánar tiltekið til ársins 2024 sem er handan við hornið. Við förum yfir sviðið með góðkunningjum þáttarins, Birni…
166| Samningaborðið á COP28 og Úkraínumenn breyta jólunum
Heimskviður hefja leika í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, í Dubai þar sem COP28 stendur nú sem hæst. Og hún á að verða ráðstefna aðgerða, svo að þau markmið sem sett hafa verið í…
165| Framtíð Kristjaníu og forsetakosningar í Bandaríkjunum
Ein helsta sérstaða fríríkisins Kristjaníu í Kaupmannahöfn er gatan Pusherstræti, þar sem lengi fór fram sala á hassi fyrir opnum tjöldum án verulegra afskipta yfirvalda. Undanfarin…
164| Undirheimastríð í Svíþjóð og það besta og versta á Indlandi.
Svíar vonast til að glæpahrina haustsins sé á enda. Dregið hefur úr skot- og sprengjuárásum nærri sænsku höfuðborginni frá því mest var í september og október. Aðferðir glæpagengjanna…
163| Stjórnarkreppa á Spáni og sextugar samsæriskenningar
Stjórnarkreppan sem hefur verið á Spáni síðan í júlí leystist á fimmtudaginn þegar 179 þingmenn á spænska þinginu greiddu atkvæði með tillögu Pedros Sanchez, leiðtoga sósíalista, um…
162| Kynferðisofbeldi innan kaþólsku kirkjunnar og körfuboltastjarna
Fyrir fáeinum dögum loguðu fjölmiðlar á Spáni, vegna skýrslu sem leiddi í ljós umfang kynferðisbrota kaþólsku kirkjunnar þar í landi. Þolendur kirkjunnar manna frá því um miðbik síðustu…
161| Stórstjarnan Taylor Swift og nýafstaðið Norðurlandaráðsþing
Sama hvort fylgst er með fréttum af menningu, viðskiptum eða öðru, nafn Taylor Swift kemur mjög víða við. Heimskviður gera hér tilraun til að kortleggja þessar um margt ótrúlegu fréttir…
160| Stórveldið Kína og meint þjóðarmorð á Grænlandi
Kína er að verða öflugasta heimsveldið og átök þeirra við Bandaríkin um völd eiga sér margar birtingarmyndir, stríðsátökin á Gaza og spennan þar í kring gæti hæglega verið ein þeirra.
159| Landamæri og kosningar í Póllandi og söguslóðir bardaga í Belgíu
Meðferð flóttafólks á landamærum Póllands og Belarús er eins og andstyggilegur borðtennisleikur, segir aðgerðarsinni sem hefur veitt mannúðaraðstoð á svæðinu. Við ætlum að fjalla um…
158| Áratuga átök Ísraels og Palestínu
Heimskviður í dag verða helgaðar stríðsátökunum í Ísrael og Palestínu. Við ætlum að fara yfir atburðarás síðastliðinnar viku, alveg frá árásinni hrottafengnu á Ísrael að morgni laugardagsins…
157| Blaðamenn í hættu á afmæli Pútíns og áhrif verkfalla í Hollywood
Eftir innrásina í Úkraínu hefur verið hert enn frekar að fjölmiðlafrelsi í Rússlandi og í sérstakri hættu eru þeir sem fjalla um hernað Rússlandshers í Úkraínu. Allir stærstu sjálfstætt…
156| Kjördagur í Slóvakíu og mistök lögreglu við leit að raðmorðingja
Af öllum þeim kosningum sem fara fram í Evrópu í ár - og þær eru þó nokkrar - eru kosningarnar í Slóvakíu í dag með þeim áhugaverðustu. Skoðanakannanir benda til þess að fyrrverandi…
155| Líf í geimnum og ólíft á ferðamannastöðum
Við reynum að svara erfiðum spurningum í Heimskviðum í dag, um líf á öðrum hnöttum og hvers vegna við hópumst öll á sömu örfáu ferðamannastaðina. Geimrannsóknarstofnun Bandaríkjanna…
154| Náttúruhamfarir í Afríku, kosningar í Póllandi og Novo Nordisk
Í Heimskviðum í dag förum við víða eins og venjulega, náttúruhamfarir í Afríku, pólitík í Póllandi og fjöllum svo um verðmætasta fyrirtæki Evrópu.
153| Heimsreisa án flugvéla og tíð valdarán í Afríku
?Yfir 13 þúsund manns hafa hjólað Tour de France. Fleiri en sex þúsund sem hafa komist á tind Everest. Yfir 550 hafa komist út í geim. En það innan við 300 manns hafa heimsótt öll…
152| Uppgjör við fortíðina í Chile og óspennandi kosningar í Rússlandi
Líkt og fjallað hefur verið töluvert um í fréttum verða forsetakosningar í Bandaríkjunum eftir rúmt ár. Bandaríkin eru þó ekki eina stórveldið sem heldur slíkar kosningar á næsta ári…
151| Áhrif kjarnorkusprengjunnar og arfleifð Megan Rapinoe
Bíóaðsókn fór fram úr björtustu vonum í sumar þegar fólk víða um heim flykktist í kvikmyndahús til að sjá bæði Barbie, sem við heyrðum í áðan og svo myndina um ævi og uppfinningar…
Argentína og Óperudraugurinn
Fjallað um stjórnmálaástandið í Argentínu og síðustu sýningar söngleiksins Óperudraugsins (Phanton of the Opera) á Broadway.
150 | Mansal og söngleikir
Mansal og söngleikir eiga fátt ef nokkuð sameiginlegt, kannski annað en það en að vera umfjöllunarefni þáttarins í dag. Evrópulögreglan, Europol, greindi frá því í fyrradag að rúmlega…
149 |Skuldaþakið og barneignir
Stífar samningaviðræður um hækkun skuldaþaksins í Bandaríkjunum hafa staðið yfir undanfarið. Oddur Þórðarson rýndi í þetta fyrirbæri, hvað er skuldaþak og til hvers er það? Og hvers…
148 |Gjaldþrot VICE og hryllingurinn í Shakahola skógi
Fjölmiðlahrun í Ameríku og fjöldamorð í Afríku eru á dagskrá í Heimskviðuþætti vikunnar. Bandarísk/kanadíska fjölmiðlafyrirtækið Vice Media er gjaldþrota og söluferlið er hafið. Þótt…
147|Úkraínska moldin og argentínska silfrið
Við komum við í Úkraínu og Argentínu í Heimskviðum þessa vikuna. Innrás Rússa hefur ekki aðeins lagt líf fólks í rúst, heldur líka náttúruna og auk allra morðanna sem Rússar eru sakaðir…
145| Borgarastríð og misskilinn Dalai Lama
Í þættinum í dag eru umfjöllunarefnin tvö, annars vegar borgarastyrjaldir og hins vegar meintur misskilningur á hvað átti sér stað þegar trúarleiðtoginn Dalai Lama bað ungan dreng…
132| Munchausen by proxy og kokkur Pútíns
Heggur sá er hlífa skyldi er líklega orðatiltækið sem passar hvað best við fyrra umfjöllunarefni þáttarins. Heilkennið og hegðunarmynstrið Munchausen by proxy er notað um fólk, oftast…
130| Goðsögnin Pelé og árið framundan í Úkraínu
Brasilíumenn kvöddu sinn dáðasta son í vikunni. Knattspyrnugoðsögnin Pelé lést rétt fyrir áramót og var borinn til grafar á fimmtudaginn. Kóngurinn sem átti svo stóran þátt í að móta…
128| Afskipti af fjölmiðlum í Rússlandi og ástandið í Suður Súdan
Við byrjum þáttinn á því að skoða rússneska fjölmiðla og hvernig þarlendir miðlar hafa fjallað um innrás Rússa í Úkraínu. BBC, Breska ríkisútvarpið rekur sérstaka deild sem fylgist…
123| Mannskæður troðningur í Seúl og kosningar í Danmörku
Meira en 150 manns, lang mest ungt fólk, krömdust til dauða í miðborg Seúl, höfuðborgar Suður Kóreu, um síðustu helgi. Fólkið var að fagna hrekkjavökunni, höfðu klætt sig upp í búninga…
117 | Serial og flóttinn frá Afganistan
Aðalpersónunni í hlaðvarpsþáttunum Serial, Adnan Syed, rúmlega fertugum Bandaríkjamanni, var sleppt úr fangelsi á mánudag, eftir 23 ára vist á bak við lás og slá. Syed var 17 ára þegar…
112 Sádarnir og golfið og kosningar í Kenía
Í þessum fyrsta Heimskviðuþætti nýrrar þáttaraðar verður komið víða við.
111 | Lokaþáttur - Jón Björgvinsson
Það er komið að lokaþætti Heimskviða þetta misserið. Viðmælandi þáttarins er ekki af verri endanum. Sjónvarpsáhorfendur hafa séð fréttir frá Jóni Björgvinssyni frá öllum heimshornum.
108 | Eftirspurn eftir úkraínskum konum og dauðarefsingar í Íran
Þar sem er stríð, þar er kynferðislegu ofbeldi sömuleiðis beitt. Það virðist því miður vera einhverskonar lögmál, meira að segja enn þann dag í dag þrátt fyrir að aðgerðir gegn kynferðisofbeldi…
100 | Hringferð um heiminn
Í hundraðasta þætti Heimskviða höldum við í hringferð um heiminn, Við förum frá Skandinavíu til Suður-Ameríku, frá Ástralíu til Mið-Austurlanda, til Rússlands og Bretlands, og til…
99 | Herskylda og staðgöngumæður í Úkraínu og danskur njósnaskandall
Rúmlega vikulangt stríðið í Úkraínu tekur eðlilega yfir flestallar fréttir þessa dagana. Innrás Rússa og afleiðingar hennar koma einnig við sögu í þættinum í dag. Frá innrás rússneskra…
98 | Innrás Rússa í Úkraínu
Heimskviður heilsa laugardaginn 26. febrúar. Þetta er 98. þáttur Heimskviðna, sem hófu göngu sína haustið 2019 - og er eins og segir í kynningu þáttarins - þáttur sem fjallar um það…
84 | Assange, Kína og American Pie
Við hefjum Heimskviður á umfjöllun um réttarhöldin yfir Julian Assange, stofnanda Wikileaks, en þau héldu áfram í síðustu viku á millidómstigi í Bretlandi. Bandarísk stjórnvöld freista…
83 | Sviptingar í Súdan, Gop26 og útför Elísabetar Englandsdrottningar
Súdanski herinn tók völdin í þessu stríshjráða Afríkuríku á sunndag, og tóku nokkra stjórnarliða höndum, þar á meðal forsætisráðherran Abdalla Hamdok, sem nú hefur verið sleppt. Stjórnskipanin…
81 | Christina Lamb og vafasöm kaup Sáda á Newcastle United
Þrátt fyrir að kynferðisofbeldi sé beitt í nær öllum hernaðarátökum hafa sárafáir dómar fallið fyrir slíka glæpi. Christina Lamb, yfirmaður erlendra frétta hjá The Sunday Times, hefur…
80 | Rodrigo Duterte og blóðsýni Elizabeth Holmes
Í þessum þætti er fjallað um komandi baráttu um forsetastólinn á Filippseyjum og manninn sem ætlar að láta af embættinu eftir sex ára skrautlega valdatíð. Rodrigo Roa Duterte fæddist…
79 | Kúbverjar vilja breytingar og er hetjan frá Rúanda skúrkur?
Í upphafsþætti haustsins höldum við Kúbu og Rúanda.
78 | G7, Rússland, Bandaríkin og litið um öxl
Í lokaþætti þessa misseris af Heimskviðum förum við um víðan völl. Í fyrri hluta þáttarins tekur Bogi Ágústsson til máls. Joe Biden Bandaríkjaforseti fór í vikunni í fyrstu utanlandsferð…
77 | Eitthvað er rotið í Danaveldi og endalok Netanyahus
Í Heimskviðum vikunnar höldum við til Danmerkur og Ísraels.
76 | Framtíð Afganistan og lífseig metsölubók
Í fyrri hluta Heimskviða verður rætt við Brynju Huld Óskarsdóttur, öryggis- og varnarmálafræðing um framtíð Afganistan, en í september næstkomandi verður herlið Bandaríkjanna og NATÓ…
Sagan endalausa í Palestínu og Ísrael, og pólitískar hliðar Eurovision
Það liggur mis beint við hvað við veljum til umfjöllunar í þessum vikulega þætti. En í þessari viku var valið ekki mjög erfitt, eftir stöðugar fréttir frá Palstínu og Ísrael þar sem…
73 | Óeirðir í Kólumbíu og ástarsambönd við fanga
Í Heimskviðum vikunnar höldum við Kólumbíu og Danmerkur.
73 | Fyrstu 100 dagar Bidens og þjóðarmorðið á Armenum
Í Heimskviðum vikunnar höldum við til Tyrklands, Armeníu og Bandaríkjanna.
66 | Bin Salman, morðið á Khashoggi og eldsvoðinn í Grenfell
Í Heimskviðum vikunnar höldum við Tyrklands, Sádí-Arabíu og Lundúna.
64 | Dyatlov-leiðangurinn og lokun Guantanamo fangabúðanna
Í Heimskviðum vikunnar förum við til Rússlands og Kúbu, en fjöllum þó ekkert um sósíalisma.
63 | Mannréttindabrot í Téteníu og kjarnorkuver í Hvíta-Rússlandi
Í síðasta þætti fjölluðum við um nágrannaríkin Mjanmar og Bangladesh. Í þættinum í dag ætlum við að dvelja í Austur-Evrópu. Við fjöllum um jafn ólíka hluti og kjarorku annars vegar…
62 | Valdarán í Mjanmar og spilling í Bangladess
Í Heimskviðum vikunnar förum við til Bangladess og Mjanmar, nágrannaríkja sem eiga sér ólíka sögu. Og sögur vikunnar frá þessum ríkjum eru einnig ólíkar.
61 | Bobi Wine, fjölmiðlar, og Covid-19 gagnagrunnur
Í Heimskviðum vikunnar er fjallað um forsetakosningarnar í Úganda, sem fram fóru 14. janúar síðastliðinn. Tónlistarmaðurinn Bobi Wine hlaut einungis 38% atkvæða og því heldur forsetinn…
60 |Stormasamar vikur í Bandaríkjunum og réttað yfir mafíósum á Ítalíu
Í fyrsta þætti nýrrar þáttaraðar Heimskviða er atburðarrás síðustu vikna í Bandaríkjunum í forgrunni. Símtalið í Georgíuríki, árásin á þinghúsið og nýr Bandaríkjaforseti. Já, vika,…
59 | Lokaþáttur: Stóri gagnalekinn og kynlífshneyksli þingmanns
Í fimmtugasta og níunda og síðasta þætti Heimskviða fjöllum við meðal annars um aðför ungverskra stjórnvalda að fjölmiðlafrelsi og Evrópuþingmanninn sem sótti kynlífspartý með öðrum…
58 | Njósnaskandall í Bretlandi og fá fátækustu ríkin bóluefni?
Í Heimskviðum í dag er fjallað um eina flóknustu og dýrustu opinberu rannsókn í sögu Bretlands, um stöðu fátækustu ríkja heims þegar bóluefni gegn Covid 19 eru annars vegar og um framtíð…
57 | Minnkaklúðrið, norðurslóðir og Fairytale of New York
Í Heimskviðum í dag er fjallað um framtíð samstarfs á Norðurslóðum og áhrif kórónuveirufaraldursins á þau sem þar búa, um framtíð loðdýraræktar og svo segjum við frá sögu jólalagsins…
56 | Átökin í Tigray, yfirgefin Palestína og var Maradona guðlegur?
Í Heimskviðum í dag er fjallað um hálfguðinn Diego Armando Maradona, sem lést í vikunni, um framtíðarhorfur í Palestínu og átök í Tigray héraði í Eþíópíu.
55 | Nagorno-Karabakh, norræn krísa og bjargvætturinn Dolly Parton
Í Heimskviðum í dag verður fjallað um aðdraganda ástandsins í Nagorno-Karabakh héraði, um bresti í norrænu samstarfi á tímum kórónuveirunnar og gleðigjafann Dolly Parton og hlutverk…
46 | Brexit, #MeToo og Julian Assange
Í Heimskviðum í dag erfjallað um næsta kafla í sögunni endalausu, úrgöngu Breta úr Evrópusambandinu, Julian Assange og #MeToo í Danmörku.
45 | Leitin að bóluefni, Navalny og Tyrkland Erdogans
Í Heimskviðum í dag segjum við frá kapphlaupinu að bóluefni gegn Covid-19, kynnum okkur stöðuna í Rússlandi í aðdraganda héraðskosninga þar um helgina, og segjum frá ferli eins þekktasta…
44 | Öryggi fréttamanna, hin pólitíska NBA deild og Hvíta-Rússland
Í Heimskviðum í dag er fjallað um öryggi blaðamanna í heiminum, sem víða er verulega ábótavant og segjum frá samblandi íþrótta og aktívsima eftir að leikmenn NBA neituðu að spila leiki…
43 | #FreeBritney, sýn Repúblikana og sjálfsvíg á Grænlandi
Í þriðja þætti haustsins er fjallað um sjálfsvíg ungs fólks á Grænlandi, sýn Repúblikana á Donald Trump og um hreyfinguna FreeBritney, sem er mönnuð stuðningsfólki tónlistarkonunnar…
42 | Flóttinn yfir Ermasund, morðið á Hariri og hin nýja Múlan
Í öðrum þætti haustins er fjallað um flóttann yfir Ermasundið. Þúsundir flóttamanna hafa það sem af er ári farið frá Frakklandi til Bretlands yfir Ermasundið á misgóðum bátum, rétt…
41| Trump í vanda, æfir Hvítrússar og framtíð Líbanon
Í fyrsta þætti annarrar þáttaráðar Heimskviða er komið við í Bandaríkjunum, Hvíta-Rússlandi og Líbanon.
Sumarútgáfa: Mið-Austurlönd
Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í áttunda og síðasta sumarþættinum er Mið-Austurlönd.
Sumarútgáfa: Deilur og átök
Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í sjöunda sumarþættinum eru deilur og átök.
Sumarútgáfa: Suður-Ameríka
Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í sjötta sumarþættinum er Suður-Ameríka.
Sumarútgáfa: Spilling
Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í fimmta sumarþættinum er spilling.
Sumarútgáfa: Glæpir og sakamál
Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í fjórða sumarþættinum er glæpir og sakamál.
Sumarútgáfa: Skemmtanaiðnaðurinn
Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í öðrum sumarþættinum er skemmtanaiðnaðurinn.
Sumarútgáfa: Karlar
Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í öðrum sumarþættinum er karlar.
Sumarútgáfa: Konur
Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í fyrsta sumarþættinum er konur. Við fjöllum um…
40 | Lokaþáttur: Sögurnar sem ekki voru sagðar
Í fertugasta og síðasta þætti Heimskviða veturinn 2019-2020 fara þáttastjórnendur yfir víðan völl. Hvaða fréttir frestuðust vegna Covid-19? Hvaða fréttir voru ekki sagðar? Eurovision-keppnin,…
38 | Afvopnunarsamningar, Bolsonaro og Inger Støjberg
Í þrítugasta og áttunda þætti Heimskviða er fjallað um afvopnunarsamninga, og þá staðreynd að Donald Trump dró nýverið Bandaríkin út úr samningi um svokallaða gagnkvæma loftelgi. Þetta…
37 | Sinnuleysið í Ischgl, ríkisstjórn í Ísrael og barnarán í Kína
Í þrítugasta og sjöunda þætti Heimskviða er fjallað um skíðabæinn alræmda, Ischgl í Austurríki. Stjórnarandanstæðingar í Austurríki segja að hagsmunatengsl ferðaþjónustunnar í Tírol…
36 | Biden í bobba, ný heimsmynd og ópólitískur Jordan
Í þrítugasta og sjötta þætti Heimskviða er fjallað um ásakanir á hendur Joe Biden, frambjóðanda Demókrata í forsetakosningunum í Bandaríkjunum í haust. Nýverið var hann ásakður um…
34 | Sænska leiðin, matarskortur í heiminum, og hver á Grænland?
Í þrítugasta og fjórða þætti Heimskviðna bregðum við okkur til Svíþjóðar, nánar tiltekið til Gautaborgar, þar sem Kári Gylfason fréttamaður býr. Kári flytur sinn fyrsta pistil fyrir…
33 | Trú og heimsfaraldur, krísa í Barcelona og framtíð sjónvarps
Í þrítugasta og þriðja þætti Heimskviðna er fjallað um trúarbrögð á tímum heimsfaraldurs. Fjölmargar kirkjur og trúfélög víða um heim hafa óhlýðnast yfirvöldum og virt samkomubann…
32 | Kórónuveira í Rússlandi, Trump í basli, og tígrisdýr í haldi mann
Í þrítugasta og öðrum þætti Heimskviðna er áfram fjallað um áhrif Covid-19 víða um heim. Fjölmörg ríki hafa slakað á aðgerðum sem miða að því að hindra útbreiðslu veirunnar, á meðan…
31 | Öfgar á tímum COVID19, áhrif veirunnar á umhverfið og Inter Miami
Í þrítugasta og fyrsta þætti Heimskviðna fjalla Guðmundur Björn og Birta um ólík viðbrögð þjóðarleiðtoga um veröld víða við útbreiðslu kórónuveirunnar COVID19. Forseti Filippseyja…
28 | Áhrif COVID19, Britta Nielsen og er stríðið í Afganistan á enda?
Í tuttugasta og áttunda þætti Heimskviðna verður ekki komist hjá því að ræða um áhrif COVID19 veirunnar á samfélög og þjóðir heims. Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti um ferðabann frá…
27 | Julian Assange, átök á Indlandi og ógnir á Norður-Atlantshafi
Í tuttugasta og sjöunda þætti Heimskviðna er fjallað um Julian Assange, stofnanda Wikileaks, og framsalskröfu Bandaríkjanna á hendur honum. Assange heldur nú uppi vörnum í Bretlandi,…
26 | COVID-19, morðingi Olof Palme og trúarleiðtogi Trumps
Í tuttugasta og sjötta þætti Heimskviðna er fjallað COVID-19, kórónaveiruna sem fer sem eldur í sinu um heimsbyggðina. Fleiri en 80 þúsund manns hafa sýkst af henni og tæplega þrjú…
25 | Umskurður kvenna, Ástralía og Extinction Rebellion
Í tuttugasta og fimmta þætti Heimskviðna er fjallað um umskurð kvenna, en á hverjum fimmtán sekúndum eru kynfæri stúlku limlest einhvers staðar í heiminum og um 200 milljónir núlifandi…
17 | Morðið á Möltu, þinkosningar í Bretlandi og endalok The Simpsons
Í sautjánda þætti Heimskviðna er fjallað um morðið á Daphne Galizia, blaðakonu á Möltu, árið 2017. Dagný Hulda Erlendsdóttir ræðir við vinkonu Galizia, Dóru Blöndal Mizzi og Renete…
16 | Skógareldar í Ástralíu, forval Demókrata og baráttan við Trump
Í sextánda þætti Heimskviðna förum við til Ástralíu. Halla Ólafsdóttir, fréttamaður, er búsett þar um þessar mundir og flytur hún okkur pistil um fordæmalausa skógarelda sem hafa geisað…
11 | Kosningar í Póllandi, krísa í Katalóníu og falsfréttir
Í ellefta þætti Heimskviðna er fjallað um nýafstaðnar þingkosningar í Póllandi, þar sem þjóðernissinnaði hægriflokkurinn Lög og réttur vann stórsigur. Flokkurinn hefur gert umtalsverðar…
9 | Vandræði Trumps, Kína fer í hart við NBA, og Danir á norðurslóðum
Í níunda þætti Heimskviðna er fjallað um hvernig Bandaríkjaforseti nýtir sér innrás Tyrkja inn í Sýrland til draga athyglina frá vandræðum heima fyrir, þar sem hann á yfir höfði sér…
8 | Stórafmæli Kína, blæðingaskömm og langþráð neðanjarðarlest í Köben
Í áttunda þætti Heimskviðna er fjallað um sjötíu ára afmæli Alþýðulýðveldisins Kína, en árið 1949 komst kommúnistaflokkur Maós formanns til valda. Mikið vatn hefur runnið til sjávar…
7 | Loftslagsfundur SÞ, rannsókn á Trump, og hinn eftirlýsti al-Bashir
Í sjöunda þætti Heimskviðna komumst við að því hvað fór fram á sérstökum fundi Sameinuðu þjóðanna í New York í vikunni, þar sem loftslagsmál voru til umræðu. Ríki heims voru krafin…
6 | Deilur Bandaríkjanna og Íran, Amazon-eldar og Abbey Road
Í sjötta þætti Heimskviðna er fjallað drónaárásir Írana, eða Jemena, það fer eftir því hverjum þið trúið - á olíuvinnslustöðvar í Sádí Arabíu. Málið er sem olía á eld milliríkjadeilu…
,