Heimskviður

252 - Þróunaraðstoð dregst saman og Harry Potter og arfleiðin erfiða

Þróunaraðstoð hefur dregist mikið saman undanfarið og í raun aldrei minna en á nýliðnu ári. Þjóðir heims forgangsraða þessari aðstoð sífellt aftar á listann. Mest munar þarna um Bandaríkin, sem hafa dregið saman seglin þegar þróunaraðstoð er annars vegar um eina 24 milljarða. Þýskaland, Frakkland, Bretland, Holland, Belgía, Sviss og Svíþjóð hafa gert það sömuleiðis. Og afleiðingar þessara ákvarðana geta haft mikil áhrif á líf fjölda jarðarbúa. Hallgrímur Indriðason fjallar um málið og ræðir við framkvæmdastjóra Mannfjöldastofnunar Sameinuðu þjóðanna.

Það eru verða 30 ár síðan Harry Potter leit fyrst dagsins ljós í bókinni Harry Potter og Viskusteinninn. Um jólin verða nýir sjónvarpsþættir frumsýndir sem segja söguna upp á nýtt, eins og hún birtist í bókum J.K. Rowling. Ekki eru þó allir á eitt sáttir með nýju þættina og með Rowling almennt. Hún hefur á síðustu árum stundað mótmæli gegn réttindabaráttu trans fólks, einkum og sér í lagi trans kvenna, sem hún segir rekin á kostnað kvenna. Mörgum aðdáendum er svo gróflega misboðið þeir hafa hætt með öllu samsama sig galdraheimi Rowling og öllu því sem hún hefur skapað. Oddur Þórðarson fjallar um málið.

Birt

4. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,