Heimskviður

220 - Bakslag í málefnum trans fólks og kafbátastrandið í skerjagarðinum

Hvað skýrir þá afturför sem hefur orðið undanfarið þegar kemur réttindum transfólks og hvers vegna er það gerast núna? Við ætlum fjalla um réttindi þessa hóps og úr hvaða jarðvegi þetta bakslag sprettur. Hverjir standa í stafni þegar sífellt háværari hatursorðræða í garð trans fólks verður vart á samfélagmiðlum? Og af hverju er verið setja lög um íþróttaiðkun transfólks? Við fáum til liðs við okkur þrjár konur til sýna í stöðuna og baksöguna og leita lausna.

Í seinni hlutanum ætlar Dagný Hulda Erlendsdóttir segja okkur skemmtilega sögu. Karlskróna í Svíþjóð var miðdepill heimspressunnar um tíu daga skeið í október 1981. Þá hafði sovéskur kafbátur, sem talið er hafi borið kjarnorkuvopn, strandað í skerjagarðinum. Þetta var í miðju kalda stríðinu og hefði vel geta orðið til þess stríð hefði brotist úr milli Svíþjóðar og Sovétríkjanna. Nýlega kom út sænsk sjónvarpsþáttaröð þar sem fjallað er um þetta. Ýmsar kenningar voru um það hvers vegna kafbáturinn strandaði, algengasta hann hafi verið við njósnir. Sjálfir sögðu reyndar Sovétmenn siglingatækin hafi bilað. Þá voru einhverjir sem töldu áhöfnin hefði verið drukkin og þá kenningu halda framleiðendur þáttanna, sem heita Whiskey on the Rocks, sig við.

Frumflutt

10. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimskviður

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,